Madueke bjargaði jólunum fyrir Chelsea Siggeir Ævarsson skrifar 27. desember 2023 21:35 Noni Madueke og Axel Disasi fagna sigurmarki þess fyrrnefnda Vísir/Getty Lundúnaliðin Chelsea og Crystal Palace mættust á Stamford Bridge í kvöld en gestirnir í Palace höfðu ekki unnið í sjö deildarleikjum í röð og fögnuðu síðast sigri í ensku úrvalsdeildinni 4. nóvember síðastliðinn. Það varð engin breyting á því í kvöld. Mykhaylo Mudryk kom Chelsea yfir snemma leiks en Michael Olise jafnaði leikinn með laglegu marki rétt fyrir hálfleik þar sem setja mátti stórt spurningamerki við varnarleik heimamanna. VAR var í nokkuð stóru hlutverki í kvöld. Fyrst var mark dæmt af Chelsea á 78. mínútu eftir að Nicolas Jackson hafði tekist að koma boltanum í netið en á 87. mínútu var VAR með Chelsea á bandi þegar liðið fékk vítaspyrnu dæmda eftir endurskoðun í VAR-herberginu. Varamaðurinn Noni Madueke fór á punktinn og skoraði af öryggi þar sem hann sendi Dean Henderson í rangt horn. Sigurinn þýðir að Chelsea lyftir sér í efri helminginn deildarinnar, í 10. sætið, með jafn mörg stig og Wolves sem liðið tapaði einmitt fyrir á aðfangadag. Crystal Palace halda áfram að leita að sigri en liðið er nú aðeins þremur stigum frá fallsæti. Enski boltinn