Mátti ekki gefa börnunum perlur íslenskrar myndlistar skömmu fyrir andlátið Jón Þór Stefánsson skrifar 29. desember 2023 19:22 Í Hæstarétti voru meðal annars verk eftir myndlistarmennina Ásgrím Jónsson, Svein Björnsson og Kjarval tekin fyrir. Átta málverk, öll eftir merka íslenska myndlistarmenn, voru miðlæg í dómi sem Hæstiréttur kvað upp í dag. Málið varðaði gerning aldraðs manns þar sem hann ráðstafaði verkunum til afkomenda sinna. Það gerði hann í desember 2018, tveimur mánuðum áður en hann lést 95 ára að aldri.
Eiginkona mannsins til margra ára vissi ekki af ráðstöfuninni fyrr en að eiginmanni sínum látnum. Hún krafðist ógildingar á ráðstöfuninni og Hæstiréttur féllst á það og eru verkin því hluti af dánarbúi hennar. Bæði Héraðsdómur Reykjavíkur og Landsréttur höfðu sýknað afkomendurna af kröfum eiginkonunnar. Verk eftir meistara íslenskrar myndlistar Málverkin sem um ræðir eru eftirfarandi: Botnssúlur eftir Gunnlaug Blöndal, Hekla eftir Jón Stefánsson, Hrafnabjörg eftir Þórarin B. Þorláksson, og þrjú verk eftir Kjarval: Nýársnótt, Andlitsmynd, og Mósaík 1963. Þá eru tvö verk til viðbótar ónefnd, annars vegar eftir Svein Björnsson og hins vegar eftir Ásgrím Jónsson. Maðurinn og konan gengu í hjónaband árið 1980 en eignuðust ekki barn saman, en hann hafði eignast þrjár dætur í fyrra hjónabandi. Ein þeirra var á lífi þegar faðirinn gerði gerninginn sem málið varðar, og önnur þeirra átti tvo afkomendur. Hann ráðstafaði verkunum þannig að eftirlifandi dóttir hans myndi fá helming verkanna átta og börn hinnar dótturinnar hinn helminginn. Þau myndu skipta þeim á milli sín samkvæmt eigin samkomulagi. Gaf verkin með einu skilyrði Þó var skilyrði í ráðstöfuninni, að verkin yrðu að vera á heimili mannsins og eiginkonu hans þangað til að búi hans yrði skipt án þess að konan myndi fá leyfi til að sitja á óskiptu búi, eða þangað til skipt yrði eftir andlát þess aðila hjónabandsins sem myndi lifa lengur ef leyfi yrði fengið fyrir setu í óskiptu búi. Ráðstöfunin var vottuð af lögmanni afkomendanna. Eiginkonan vildi meina að ógilda ætti gerning mannsins þar sem hann væri í ósamræmi við sameiginlega erfðaskrá hennar og mannsins sem var gerð árið 2016. Ógildur gerningur Í dómi Hæstaréttar segir að ágreiningur málsins varði það hvort gerningur mannsins hafi verið lífsgjöf eða dánargjöf. Útskýrt er í dómnum að dánargjöf sé gjöf sem ekki er ætlast til að komi til framkvæmda fyrr en að gefanda hennar látnum. Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu að ráðstöfun mannsins félli undir þann hatt, og að hún hafi ekki fylgt reglum erfðalaga og því væri gerningur hans ógildur. Líkt og áður segir dæmdi Hæstiréttur á þann veg að verkin myndu teljast hluti dánarbús konunnar.
Dómsmál Myndlist Tengdar fréttir Kjarvalsmálverkið var ekki fest við vegg Málverkið eftir Jóhannes Kjarval sem stolið var á Kjarvalsstöðum í gærdag var ekki fest við vegg, segir safnstjóri. Skömmu eftir ránið voru tveir einstaklingar handteknir og síðar um daginn fannst málverkið. 10. maí 2009 10:49 „Ásgrímsleiðin“, ný leið í Árnessýslu fyrir ferðamenn Sunnlendingar eru stoltir af því að einn færasti listamaður þjóðarinnar, Ásgrímur Jónsson hafi verið fæddur og uppalinn í Flóanum og hafa af því tilefni búið til sérstaka rútuferð, „Ásgrímsleið“ fyrir ferðamenn og aðra þar, sem farið er á söguslóðir Ásgríms í Árnessýslu. 2. apríl 2023 20:05 Mest lesið „Í mínum huga er þarna illa farið með dýr“ Innlent „Þú værir í fangelsi ef ekki væri fyrir mig“ Erlent Þingnefnd breytir ekki forgangsröð jarðganga Innlent Sundlaugar opnar til miðnættis og ótakmörkuð bílastæði Innlent Ari missti af fyrsta fundinum Innlent Gerðu árásir á eyju í Hormússundi í nótt Erlent Þórkatla slökkvi vonarneistann með nýjum samningi Innlent Mótmæli og átök vegna dauða Henry Nowak Erlent Fjögurra flokka meirihluti í Norðurþingi Innlent Kærð fyrir að draga sér ríflega tólf milljónir úr dánarbúi Innlent Fleiri fréttir Fjögurra flokka meirihluti í Norðurþingi „Í mínum huga er þarna illa farið með dýr“ Þingnefnd breytir ekki forgangsröð jarðganga Þórkatla slökkvi vonarneistann með nýjum samningi Lilja Björg ráðin sveitarstjóri Dalabyggðar Kærð fyrir að draga sér ríflega tólf milljónir úr dánarbúi Sjálfstæðismenn formenn sjö ráða af átta Baldur og Herjólfur sigla til Eyja Sundlaugar opnar til miðnættis og ótakmörkuð bílastæði Dýrum stefnt í hættu Unnur Brá sveitarstjóri í Borgarbyggð og Skorradalshreppi Beri skylda að skila Dananum hugsanlega á Þingvöllum Tímamót í borginni, innbrot í kjúklingabú og forritari á barnsaldri „Ávirðingarnar sem þetta fólk lét út úr sér eru því sjálfu til skammar“ Sumaráætlun Herjólfs frestað Leit að eftirmanni Höllu Bergþóru hafin Fær annan skóla undir sinn væng Faldi rúmar þrjátíu milljónir í peningaskáp Skjálftahrinan mallar enn Ari missti af fyrsta fundinum Kourani gæti losnað eftir þrjá mánuði eftir lagabreytingu Situr rúma viku á þingi fyrir sumarfrí „Heiður lífs míns að vera borgarstjóri“ Fordæma innbrot í Reykjabú Mun örugglega leita ráða hjá Heiðu „Greiddi smyglurum verulegar upphæðir til að komast á leiðarenda“ Ljósið fékk langtímasamning Ætlar ekki í varaformannsframboð Verði hægt að sækja um skilnað án þess að gefa upp ástæðu Yfir 70 þúsund horfðu á kappræðurnar á Sýn Sjá meira
Kjarvalsmálverkið var ekki fest við vegg Málverkið eftir Jóhannes Kjarval sem stolið var á Kjarvalsstöðum í gærdag var ekki fest við vegg, segir safnstjóri. Skömmu eftir ránið voru tveir einstaklingar handteknir og síðar um daginn fannst málverkið. 10. maí 2009 10:49
„Ásgrímsleiðin“, ný leið í Árnessýslu fyrir ferðamenn Sunnlendingar eru stoltir af því að einn færasti listamaður þjóðarinnar, Ásgrímur Jónsson hafi verið fæddur og uppalinn í Flóanum og hafa af því tilefni búið til sérstaka rútuferð, „Ásgrímsleið“ fyrir ferðamenn og aðra þar, sem farið er á söguslóðir Ásgríms í Árnessýslu. 2. apríl 2023 20:05