Mögulega dregið um hvort Ísland fari áfram Sindri Sverrisson skrifar 16. janúar 2024 13:38 Ómar Ingi Magnússon og félagar hans í íslenska landsliðinu mæta Ungverjum í lokaleik C-riðils Evrópumótsins í kvöld. vísir/vilhelm Ef að Serbía vinnur Svartfjallaland í kvöld, 30-29, og Ísland tapar fyrir Ungverjalandi 27-26, þá enda Ísland og Serbía nákvæmlega jöfn í 2.-3. sæti C-riðilsins á EM karla í handbolta.
Verði þetta niðurstaðan, það er að segja að Ísland tapi með akkúrat einu marki og Serbía vinni með einu marki, og að Serbía skori jafnframt fjórum mörkum meira en Ísland í kvöld, verða liðin nefnilega bæði með þrjú stig, jafnmörg mörk skoruð á mótinu og jafnmörg fengin á sig. Aðeins ef þetta yrði niðurstaðan þyrfti að draga um það hvort liðanna færi áfram í milliriðla. Ekki kemur fram í reglum EHF nákvæmlega hvar og hvenær yrði dregið, en þar segir aðeins að ef mögulegt sé þurfi einn fulltrúi frá hvorri þjóð að vera viðstaddur dráttinn. Yfirgnæfandi líkur eru hins vegar á að niðurstaðan verði allt önnur en í þessu einstaka tilviki. Ljóst er að Ísland kemst áfram í milliriðla ef að liðið tapar ekki gegn Ungverjalandi, og Ísland gæti verið komið áfram áður en leikur hefst ef Serbía vinnur ekki Svartfjallaland. Báðir leikir fara fram í Ólympíuhöllinni og er sá fyrri klukkan 17:00 að íslenskum tíma en sá seinni klukkan 19:30. Ef að Ísland vinnur Ungverjaland fara þessi tvö lið áfram í milliriðil í Köln, og Ísland þá með stigin tvö úr leik sínum við Ungverja. Ef þau gera jafntefli fara liðin með eitt stig hvort áfram í milliriðilinn. Ef Ungverjaland og Serbía vinna, og markamunurinn verður meiri en eitt mark í að minnsta kosti öðrum leiknum, komast Ungverjar og Serbar áfram. Keppni í milliriðlinum hefst strax á fimmtudaginn og liðin sem komast þangað spila að minnsta kosti fjóra leiki til viðbótar á mótinu, gegn liðum úr A- og B-riðli. Næsti leikur Íslands á EM er við Ungverjaland í kvöld klukkan 19.30. Öflugt teymi Vísis er á staðnum og fjallar ítarlega um mótið í máli og myndum.
EM 2024 í handbolta Landslið karla í handbolta Mest lesið Segir engan Frakka vera í franska landsliðinu Fótbolti Segja einn mann hafa séð um að aflétta banni Balogun Fótbolti Kærastan birti viðbjóðinn: Sörloth sagt að fremja sjálfsvíg eftir tapið á HM Fótbolti Sjáðu markasúpuna úr Bestu deildinni í gær Íslenski boltinn Goðsögn tekur við eftir vonbrigðin á HM Fótbolti „Er að fara vinna þennan gullskó og ég er að fara slá markametið“ Íslenski boltinn McGregor entist aðeins í 69 sekúndur Sport „Ég er svo lélegur í golfi“ Golf Þjálfarinn rekinn eftir hótun leikmanns Fótbolti FIFA: Örflagan sýnir enga snertingu við vírinn Fótbolti Fleiri fréttir Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Sjá meira