Skýrsla Henrys: Úlfurinn át strákana okkar Henry Birgir Gunnarsson skrifar 18. janúar 2024 23:01 Wolff er hér að verja víti frá Ómari Inga á ögurstundu. vísir/vilhelm Hvað á maður að segja? Þvílík vonbrigði þessi leikur í kvöld og mótið í heild sinni. Draumurinn um óvænt undanúrslit er dáinn og Ólympíudraumurinn færist fjær. Þetta er alls ekki nógu gott.
Það var magnað að upplifa þessa stemningu í kvöld. 20 þúsund áhorfendur og mikil stemning. Strákarnir voru svo sannarlega mættir í gin ljónsins. Þeir elska oft að spila þar en á endanum var það stóri úlfurinn sem át þá. Andreas Wolff steig alltaf upp er á þurfti að halda. Er Þjóðverjarnir klúðruðu þjóðsöngnum grunaði mig að þetta væri akkúrat bensínið sem strákarnir þurftu til að vinna leikinn. Þeir fengu svo sannarlega tækifærin til þess. Eins og einhvern tímann áður. Aron leiddi frá byrjun eins og sannur leiðtogi og Ýmir Örn var eins og skylmingaþræll í vörninni. Þar fyrir aftan var Viktor Gísli flottur. Sóknarleikurinn bauð loksins upp á smá kaíró og meira flot. Breiddin skilaði sínu og liðið sem spilaði seinni part fyrri hálfleiks var betra en byrjunarliðið. Það voru alls konar stundir í seinni hálfleik sem hefðu átt að breyta leiknum og færa stemninguna yfir til Íslands. Bjöggi kemur tvisvar inn og ver víti til að mynda. Dómgæslan í lokin var auðvitað til háborinnar skammar og það er fullkomlega óþolandi að þessir vafasömu dómarar séu enn að dæma á stærsta sviðinu. Frammistaðan verðskuldaði að minnsta kosti stig en okkar menn skutu sig of oft í fótinn. Það er ekki í boði í svona leikjum. Fjögur víti fóru í súginn og hægri hornamennirnir fóru eins og svo oft áður með mörg dauðafæri. Gamlir draugar á þessu móti héldu áfram að láta á sér kræla. Það er sárt að kyngja þessu tapi. Dauðafæri í kvöld sem glutraðist. Það er því miður stefið hjá strákunum að þessu sinni. Ég veit ekki hvað hefur gerst fyrir sómadrenginn og heimsklassamanninn Ómar Inga á þessu móti. Hann er aðeins skugginn af sjálfum sér og getur vart skorað úr vítum. Það var áhugaverð ákvörðun að setja hann á punktinn með allt undir. Það er erfitt að ná árangri þegar einn af okkar bestu mönnum er farþegi í flestum leikjum. Hægri hornamennirnir Sigvaldi og Óðinn þurfa svo að taka marga kaffibolla og komast yfir þennan andlega hól sem þeir eru að glíma. Þessir strákar eru þekktir fyrir að vera ískaldir og öruggir en klúðrin þeirra í þessu móti hafa verið ansi dýr. Þetta er svo sannarlega mót hinna glutruðu tækifæra. Ýmir Örn Gíslason var maður leiksins. Með íslensku geðveikina að vopni keyrði hann Þjóðverjana niður hvað eftir annað og sýndi viðhorf sem fleiri mættu sýna. Ofboðslegur andi í Ými. Geggjaður. Viktor Gísli skilaði sínu og Bjöggi kom með vítavörslur af bekknum. Svona markvarsla á að skila stigi eða stigum. Janus Daði fékk traustið í dag og blómstraði. Það var frábært að sjá. Keyrði liðið áfram í sókninni á löngum köflum. Hafði hugrekkið og gæðin. Aron byrjaði vel en féll allur ketill í eld í seinni hálfleik þar sem hann skoraði ekki. Frammistaðan í heild sinni var stórt framfaraskref og liðið loksins að spila eins og við vitum að það getur. Það voru gæði og það var loksisn alvöru andi í mönnum. Þegar á hólminn var komið reyndist það ekki nógu gott. Nú vil ég sjá strákana setja kassann út og skila lokaleikjunum með sóma svo þetta móti endi ekki sem alger martröð.
EM 2024 í handbolta Landslið karla í handbolta Mest lesið John Barnes greindist með krabbamein Fótbolti Samkomulag náðst milli Iraola og Liverpool Fótbolti Tileinkaði Úkraínu sigurinn Sport Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Körfubolti Fékk ekki að ferðast með landsliðinu til Bandaríkjanna Fótbolti Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Körfubolti Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Enski boltinn „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Enski boltinn Ver val á meintum kynferðisbrotamanni Fótbolti Fleiri fréttir Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Átta mörk Óðins en gullið að renna úr greipum Benedikt og Sigurjón leiddu Kolstad að titlinum Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Einar Bragi í miklu stuði eftir ráð pabba og skrefi frá titlinum Verður Aron þjálfari FH? Göppingen vann Einar án Ýmis Elín Klara sænskur meistari Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Nýjasti titillinn í næstmestu uppáhaldi hjá Gísla Sjá meira