Hvass vindur syðst á landinu Atli Ísleifsson skrifar 5. febrúar 2024 07:13 Gera má ráð fyrir talsverðu frosti á öllu landinu í dag. Vísir/Vilhelm Dálítil lægð hreyfist nú til austurs, skammt sunnan við land. Lægðinni fylgir allhvöss eða hvöss norðaustanátt allra syðst, frá Eyjafjöllum austur í Öræfi og gæti þar snjóað og skafið um tíma, þannig að skyggni yrði lélegt.
Frá þessu segir á vef Veðurstofunnar. Fram kemur að það verði heldur hægari vindur í öðrum landshlutum og dálítil él á víð og dreif, en þurrt að kalla á Vesturlandi. Talsvert frost á öllu landinu. Síðdegis fjarlægist lægðin og léttir þá til sunnan heiða, en éljagangur færist í aukana fyrir norðan. Í kvöld nálgast önnur lægð úr norðri og gengur þá í allhvassa eða hvassa norðvestanátt með snjókomu fyrir norðan, sem heldur síðan áfram á morgun. Einnig hvessir nokkuð víða á morgun og búast má við snörpum vindstrengjum við fjöll, einkum á Vestfjörðum, Snæfellsnesi og Suðausturlandi. Dregur síðan heldur úr vindi og úrkomu á miðvikudag, en verður áfram kalt í veðri. Ferðalangar eru því hvattir til að fylgjast vel með veðurspám og færð áður en lagt er af stað,“ segir í vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag: Norðvestan og norðan 10-15 m/s og snjókoma eða él, en lengst af úrkomulítið sunnan heiða. Frost 0 til 10 stig, minnst við sjávarsíðuna. Á miðvikudag: Norðan 8-15 m/s og él, hvassast á annesjum, en bjart með köflum sunnan- og vestanlands. Frost 1 til 12 stig, kaldast inn til landsins. Á fimmtudag: Norðlæg átt, 3-10 m/s og víða bjartviðri, en dálítil él við norður- og austurströndina. Frost 3 til 15 stig, minnst við sjóinn. Á föstudag: Hæg breytileg átt og dálítil él á víð og dreif. Harðnandi frost. Á laugardag: Fremur hæg suðaustlæg átt og snjókoma með köflum, en úrkomulítið á Norður- og Austurlandi. Dregur heldur úr frosti. Á sunnudag: Útlit fyrir hægviðri, él á stöku stað og nokkuð frost um land allt.
Veður Mest lesið Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Viðskipti innlent Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Sjá meira