Vinir og vandamenn fögnuðu nýrri plötu Ízleifs, sem kemur út á miðnætti, á Mánabar í Þjóðleikhúsinu.gunnar dagur
Beðið er eftir fyrstu plötu tónlistarmannsins Ízleifs með eftirvæntingu. Ízleifur, sem er bæði pródúsent og rappari, hélt hlustunarpartý fyrir vini og vandamenn í Þjóðleikhúsinu í vikunni.
Ljósmyndir af gestum og stemningu hlustunarpartýsins er að finna hér neðar í greininni.
Ízleifur hefur undanfarin ár unnið með helstu röppurum landsins; Gísla Pálma, Sturla Atlas og Yung Nigo Drippin', svo einhverjir séu nefndir. Erlingur Freyr Thoroddsen
Ízleifur, sem heitir réttu nafni Ísleifur Eldur Illugason, kveðst hafa unnið að plötunni nú í rúm þrjú ár. Hann hefur um hríð verið einn afkastamesti pródusent íslensku rappsenunnar. Ferskur hljómur í anda nýrri strauma rappsenunnar vestanhafs hefur einkennt tónlist Ízleifs hingað til. Það sama er uppi á teningnum á fyrstu plötu hans sem kemur út á miðnætti og ber nafnið Þetta er Ízleifur. Platan er gefin út af plötuútgáfu Priksins, Sticky.
Góðum gestum bregður fyrir á plötunni, þar á meðal rapparanum Daniil og söngkonunni GDRN. Þá hefur umbrot og hönnun plötunnar, í höndum Erlings Freys Thoroddsen, vakið verðskuldaða athygli:
Plötuumsslagið er í þema vegabréfs og lögin sjálf skrifuð sem vegabréfsáritanir. Erlingur Freyr Thoroddsen
Greina mátti ferskan andblæ í loftinu á Mánabar síðasta þriðjudag og voru gestir sammála um að á ferðinni væri ansi efnileg plötufrumraun. Eins og áður segir er hún væntanleg á streymisveitur á miðnætti.
Rapparinn Daniil kemur fram á plötunni.Gunnar DagurGestir fögnuðu vel og innilega.Gunnar DagurGísli Pálmi lét sig ekki vanta.gunnar dagurSigfinnur Böðvarsson, Bergþór Másson, Dagur Sigurðarsson og Benedikt Andrason.gunnar dagurGDRN kemur einnig fram á plötunni.gunnar dagurLíkamsræktarfrömuðurinn Gummi Emil ásamt Ízleifi. gunnar dagurAdam Pálsson, Ágúst Beinteinn og Páll Orri ásamt ízleifi.gunnar dagurTónlistarmaðurinn Lexi Picasso var á svæðinu.gunnar dagur