Þjóðverjar veðja á Alfreð næstu árin en setja fyrirvara Sindri Sverrisson skrifar 4. mars 2024 11:31 Alfreð Gíslason hefur náð góðum árangri með þýska landsliðið og er sjálfsagt ætlað að stýra því til verðlauna á næstu árum. Getty/Federico Gambarini Þýska handknattleikssambandið tilkynnti í dag um nýjan samning við Alfreð Gíslason sem verður áfram þjálfari þýska karlalandsliðsins út febrúar 2027.
Alfreð verður þar með treyst til að stýra þýska liðinu fram yfir heimsmeistaramótið sem fram fer í Þýskalandi í janúar 2027. Reyndar er sá fyrirvari settur að Þýskaland verði að komast í gegnum ólympíuumspilið í þessum mánuði. Annars renni samningur Alfreðs út á þessu ári. Alfreð hefur stýrt þýska liðinu síðustu fjögur ár og kom liðinu í undanúrslit á heimavelli á EM í janúar síðastliðnum, þar sem Þýskaland endað í 4. sæti. „Ég er mjög þakklátur fyrir það traust og tækifæri sem ég fæ til að stýra landsliðinu í vegferðinni fram til 2027. Það býr gríðarlega mikið í þessu liði til að ná afar langt á næstu stórmótum. Næstu dagar fara hins vegar í að gera allt til þess að allt gangi upp í undankeppni Ólympíuleikanna,“ sagði Alfreð á heimasíðu þýska sambandsins. Þýskaland verður á heimavelli í undankeppni Ólympíuleikanna, 14.-17. mars, og berst við nýju lærisveinanna hans Dags Sigurðssonar í Króatíu, sem og Austurríki og Alsír, um tvö laus sæti á leikunum í París í sumar. Alfreð, sem er 64 ára gamall, stýrði Þýskalandi til 5. sætis á síðasta heimsmeistaramóti, fyrir rúmu ári síðan, og eftir árangurinn á EM er liðið öruggt um sæti á næsta HM, í janúar næstkomandi. Auk þess að semja við Alfreð þá framlengdi þýska sambandið samning sinn við Markus Gaugisch, þjálfara kvennalandsliðsins, fram á sumarið 2026.
Handbolti Ólympíuleikar 2024 í París Mest lesið Brjóta lög fótboltans með sýningunni í hálfleik Fótbolti Segir að þarna hafi Haaland skorað sjálfsmark Fótbolti Bónorð strax eftir leik í Garðabæ Íslenski boltinn Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Enski boltinn „Er dómarinn á því getustigi sem þarf í undanúrslitum HM?“ Fótbolti Tvenna Daníels tryggði Víkingi meira en hundrað milljónir Fótbolti „Dapurlegt tímabil í sögu ríkis okkar“ Fótbolti Sjáðu Víkinga fagna lokaflautinu og sæti í næstu umferð Fótbolti Kæra forseta FIFA til Alþjóðaólympíunefndarinnar Fótbolti „Hann var farinn að spyrja hvenær við ætluðum að flytja til Íslands“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Sjá meira