Selur tösku og eitt eintak af nýrri plötu á eina milljón Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 18. mars 2024 14:01 Tónlistarmaðurinn ISSI er að fara að senda frá sér nýja plötu og selur sérhannaða tösku í tilefni af því. Erlingur Freyr „Útgáfudagur plötunnar er enn leyndó,“ segir tónlistarmaðurinn ISSI hefur að undanförnu unnið hörðum höndum að glænýrri plötu sem ber heitið 21. Fyrr í dag birti hann færslu á Instagram þar sem hann auglýsir tösku og eitt eintak af plötunni til sölu á milljón krónur.
Í færslunni skrifar ISSI meðal annars: „Aðeins ein taska. Aðeins einn diskur.“ View this post on Instagram A post shared by ISSI (@21issi) „Taskan er til sölu ásamt forútgáfu plöturnar á geisladisk sem er í vinnslu hjá Glacier Mafia. Pródúserar Glacier Mafia hafa gert mörg af vinsælustu lögum síðari tíma,“ segir ISSI og á þá meðal annars við lög rapparans Gísla Pálma. Taskan umrædda og ISSI. Erlingur Freyr ISSI segir að það taki mikinn tíma, vinnu og pening að framleiða plötu á þessum skala. Hann hafi viljað að taskan endurspeglaði það. „Taskan er gerð úr 100% nappa leðri sem er talið lúxus leður og er merkt með einkenninu 21. Innan í henni er svart faux suede efni sem er mjúkt og gefur töskunni lúxus fíling. Hún er síðan handsaumuð og handmáluð í London og skartar silfurlituðum málmi í takt við prentið á henni. Platan mín 21 er svo loksins að koma út á næstu vikum. Ég og liðið mitt höfum verið að leggja inn ítarlega vinnu síðastliðna mánuði til þess að fullkomna verkefnið og er tíminn loksins að skella á. Nú liggur platan í höndum hljóðfræðinga sem eru að púsla síðustu púslunum á réttan stað. Á meðan þeir vinna að því hef ég verið að skipuleggja útgáfutónleika í Gamla Bíó sem verða haldnir þann 20. apríl og munu þeir ekki fara framhjá neinum, það er loforð.“ Í spilaranum hér að neðan má heyra lagið Lognið undan storminum með ISSA frá því í fyrra: Myndbandið fékk um níu þúsund áhorf á fyrsta klukkutímanum og virðist þetta vekja athygli. „Það er svolítið klikkað hversu margir eru búnir að horfa á þetta. Ég er kominn með nokkur tilboð. Einn bauð 300 þúsund og nokkrir eru að spyrja hvort hægt sé að semja um verðið. Ég verð að neita því,“ segir ISSI kíminn að lokum.
Tónlist Tíska og hönnun Tengdar fréttir Elíta íslenska rappsins tryllti lýðinn í Iðnó „Þetta var bara ótrúlegt kvöld og fór alveg vonum framar,“ segir tónlistarmaðurinn og rapparinn Ízleifur. Hann stóð fyrir stöppuðum útgáfutónleikum í Iðnó síðastliðið föstudagskvöld þar sem úrvalslið rappara steig á svið með honum. 11. mars 2024 13:22 ISSI á toppi Langjökuls: „Þeir segja að það sé kalt á toppnum svo ég klæddi mig vel“ Tónlistarmaðurinn Issi tók upp tónlistarmyndband á toppi Langjökuls á dögunum við lagið Klukkan seint. Lagið er að finna á plötunni Rauð viðvörun sem hann sendi frá sér í apríl síðastliðnum. 17. júlí 2023 15:31 Varar fólk við storminum sem er að skella á tónlistarsenuna „Þessi skífa er einfaldlega lognið undan storminum,“ segir tónlistarmaðurinn Issi, sem ætlar að gefa út EP plötuna Rauð viðvörun á miðnætti. Blaðamaður tók púlsinn á honum. 6. apríl 2023 11:30 Mest lesið Mugison þakkar innilega fyrir sig Tónlist Bréf til ókunnugrar stúlku varð upphafið að nýju lífi á Íslandi Lífið Moulin Rouge felld niður tvo daga í röð Lífið Fékk nýtt tækifæri með nýra frá mömmu Lífið „Eins og að horfa á eftir börnunum sínum fara út í lífið“ Lífið Fréttatía vikunnar: Verðbólga, eldflaug og Dior Lífið Stjörnustríðs-leynivopnið Marcia Lucas látin Bíó og sjónvarp Kúluhúsið falt fyrir níutíu milljónir Lífið Eliza fór í viðtal til Kelly Clarkson: „Ég breytti ekki heiminum sem forsetafrú en ég reyndi að gera mitt“ Lífið Týndi sjálfri sér til að þóknast öðrum Tónlist Fleiri fréttir Mugison þakkar innilega fyrir sig Segir gagnrýnina til marks um normalíseringu barnagirndar Snúa aftur á byrjunarreit: „Það þekkir enginn rassinn á mér eins vel og Addi“ Týndi sjálfri sér til að þóknast öðrum Svona er Þjóðhátíðarlagið 2026 Blóð, sviti og tár skemmtilegra en að prumpa út lögum Bó átti að syngja á nýju lagi Stefáns: „Örlögin gripu í taumana“ Stendur með Bríeti í deilunni við Pálma Þá var kátt í höllinni Shakira sýknuð Þrjú hundruð kórbörn frumflytja lag Herra Hnetusmjör fagnar fyrir fullri Laugardalshöll „Þetta var erfiðasta ár lífs míns“ Nennti ekki að meika það Stjörnufans hjá Birni á Edition Fjarsamband alltaf erfitt Eurovision fer fram í vikunni en hlustunartölur hríðfalla Tónleikum Yasiin Bey frestað með dags fyrirvara fram á haust Ástarsorgin átakanleg en gjöful Joey Christ, Dóri DNA, og 7Berg í upphitun fyrir Yasiin Bey Kynþokkafullir með fortíðarþrá Stuðpinnar skáluðu í innsetningunni Shakira söng fyrir milljónir á Copacabana DJ Krush á Extreme Chill Of Monsters and Men með stórtónleika á Íslandi Ásgeir heldur stórtónleika í Hörpu í ágúst Úlfarnir rifu næstum þakið af Austurbæ Þjóðþekktir tónlistarmenn koma fram í heimahúsum Flóni og Alaska ekki lengur „bara vinir“ Námið ekki eins krefjandi og á Tene Sjá meira
Elíta íslenska rappsins tryllti lýðinn í Iðnó „Þetta var bara ótrúlegt kvöld og fór alveg vonum framar,“ segir tónlistarmaðurinn og rapparinn Ízleifur. Hann stóð fyrir stöppuðum útgáfutónleikum í Iðnó síðastliðið föstudagskvöld þar sem úrvalslið rappara steig á svið með honum. 11. mars 2024 13:22
ISSI á toppi Langjökuls: „Þeir segja að það sé kalt á toppnum svo ég klæddi mig vel“ Tónlistarmaðurinn Issi tók upp tónlistarmyndband á toppi Langjökuls á dögunum við lagið Klukkan seint. Lagið er að finna á plötunni Rauð viðvörun sem hann sendi frá sér í apríl síðastliðnum. 17. júlí 2023 15:31
Varar fólk við storminum sem er að skella á tónlistarsenuna „Þessi skífa er einfaldlega lognið undan storminum,“ segir tónlistarmaðurinn Issi, sem ætlar að gefa út EP plötuna Rauð viðvörun á miðnætti. Blaðamaður tók púlsinn á honum. 6. apríl 2023 11:30
Eliza fór í viðtal til Kelly Clarkson: „Ég breytti ekki heiminum sem forsetafrú en ég reyndi að gera mitt“ Lífið
Eliza fór í viðtal til Kelly Clarkson: „Ég breytti ekki heiminum sem forsetafrú en ég reyndi að gera mitt“ Lífið