Með 26 mörk og 25 stoðsendingar á tímabilinu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. mars 2024 15:01 Liðfélagar Caroline Graham Hansen hjá Barcelona fagna henni eftir markið hennar á móti Real Madrid. Getty/Alberto Gardin Norska knattspyrnukonan Caroline Graham Hansen er allt í öllu hjá spænska liðinu Barcelona í 3-0 sigri á Real Madrid í El Clasico um helgina.
Eftir þennan sigur Barcelona eru þær komnar með tólf stiga forskot á toppi deildarinnar. Það stefnir því í að liðið vinni spænsku deildina fimmta árið í röð. Barcelona hefur unnið fjórtán El Clasico leiki í röð síðan að Real Madrid gleypti kvennalið CD Tacon árið 2020. Hansen átti þátt í fyrsta markinu sem Fridolina Rolfö skoraði, átti stoðsendinguna á Aitana Bonmatí í öðru markinu og skoraði síðan það þriðja sjálf. Markið og stoðsendingin þýða að Hansen er nú komin með 26 mörk og 25 stoðsendingar á tímabilinu í 29 leikjum í öllum keppnum. 51 skapað mark í 29 leik eða 1,75 sköpuð mörk að meðaltali í leik. Hansen er 29 ára gömul og hefur spilað með Barcelona frá árinu 2019. Liðið hefur unnið spænsku deildina öll tímabil hennar með liðinu og Meistaradeildina tvisvar sinnum. Norski knattspyrnusérfræðingurinn Carl-Erik Torp heldur því fram að hún sé besta fótboltakona heims í dag. Barcelona getur tryggt sig áfram í undanúrslit Meistaradeildarinnar með sigri á Brann í seinni leik liðanna en spænska liðið vann fyrri leikinn 2-1 í Noregi. Liðið á enn möguleika á þrennunni því liðið er komið í úrslitaleik spænska bikarsins.
Spænski boltinn Mest lesið Íslandsmeistarinn úr leik og þrettán ára gutti stal senunni Sport „Ég bað ekki um fjögur stig en fékk fjögur stig“ Sport Körfuboltakvöld: Tilþrif 6. umferðar Körfubolti Arftaki De Rossi entist í aðeins átta leiki Fótbolti Inter klúðraði gullnu tækifæri til að komast á toppinn Fótbolti Nistelrooy þakklátur en veit ekki hvað tekur nú við Enski boltinn Orri Steinn spilaði hálftíma í sigri á toppliði Barcelona Fótbolti Mick Schumacher gaf sjaldgæfa innsýn inn í líf föður síns Formúla 1 „Frammistaðan var góð“ Enski boltinn Uppgjörið: Ísland - Rúmenía 77-73 | Fyrsti sigur íslenska liðsins í tvö ár Körfubolti Fleiri fréttir Inter klúðraði gullnu tækifæri til að komast á toppinn Arftaki De Rossi entist í aðeins átta leiki „Frammistaðan var góð“ Nistelrooy þakklátur en veit ekki hvað tekur nú við Orri Steinn spilaði hálftíma í sigri á toppliði Barcelona Ingibjörg á skotskónum og Cecilía Rán varði víti og hélt hreinu Jafntefli sem gerir lítið fyrir bæði lið Nýliðarnir sóttu þrjú stig til Tottenham og Newcastle skellti Forest United menn á allt öðrum og betri stað eftir inngrip Van Nistelrooy Sævar Atli skoraði og fiskaði mikilvægt víti fyrir Lyngby „Velkomin í dal draumanna“ Gleymdi að kjósa Vinicius Junior Barnið þriggja vikna þegar mamman kom inn á og varð sænskur meistari Liverpool hefur áhyggjur af meiðslunum hjá Trent Fram og Reykjavíkurborg semja um frekari framkvæmdir í Úlfarsárdal Messi og félagar óvænt úr leik í fyrstu umferð en Dagur Dan fór áfram Á bara eftir að skora á Anfield og heimavelli Brentford Fer til Eyja og fetar í fótspor föður síns „Því miður gefur sigur á Man City aðeins þrjú stig“ Juventus vann grannaslaginn „Kemur alltaf að því að eitthvað gerist í fyrsta skipti á ævinni“ Tvær breytingar á landsliðshópnum Gestirnir réðu ekki við hraðann í strákunum hans Slot Milan missteig eftir sigurinn frækna á Real Willum Þór lagði upp þegar Birmingham tapaði óvænt stigum Brighton sá til þess að Man City tapaði fjórða leiknum í röð Hermann Hreiðars tekur við HK Bayern jók forystuna á toppnum á meðan Dortmund og Leverkusen töpuðu stigum Liðsfélaginn náði þriggja marka forskoti á Emilíu Kiær Birkir Bjarna kom aftur inn á og skoraði Sjá meira