Líkur á erfiðum akstursskilyrðum Atli Ísleifsson skrifar 4. apríl 2024 07:13 Hiti verður nálægt frostmarki að deginum. Vísir/Vilhelm Veðurstofan gerir ráð fyrir suðaustan átta til þrettán metrum á sekúndu í dag og snjókomu á vestanverðu landinu. Hafa íbúar á höfuðborgarsvæðinu vaknað upp við hvíta jörð í morgun.
Á vef Veðurstofunnar segir að líkur séu á erfiðum akstursskilyrðum, einkum á fjallvegum eins og Hellisheiði. Mesta snjókomu verði á vestanverðu Snæfellnsesi, í kringum 40 sentimetra. Einnig megi búast við stöku éljum á Suðausturlandi. Hægari og bjart að mestu norðan- og austantil. „Hiti nálægt frostmarki að deginum en 0 til 5 stiga frost norðaustanlands. Kólnar aftur í kvöld, talsverð frost um norðan- og norðaustanvert landið. Norðaustan 8-15 m/s á morgun, hvassast á Vestfjörðum fyrripart dagsins en síðar á Suðausturlandi. Dálítil él norðan- og austantil, annars bjart að mestu. Hiti breytist lítið. Um helgina er útlit fyrir norðaustan hvassviðri eða storm með éljum eða snjókomu á norðan- og austanverðu landinu. Frost um mest allt land,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á föstudag: Norðaustan 5-13 m/s og bjart með köflum, en dálítil él norðaustantil og syðst á landinu. Frost 0 til 6 stig yfir daginn, en hiti rétt yfir frostmarki sunnantil. Á laugardag: Norðaustan 10-18 og dálítil él norðan- og austanlands, en bjartviðri á Suður- og Vesturlandi. Frost 0 til 10 stig, kaldast fyrir norðan. Á sunnudag: Norðan og norðaustan 15-23 og snjókoma með köflum, en yfirleitt þurrt suðvestantil. Hiti nærri frostmarki. Á mánudag: Norðan 8-15 með snjókomu á norðanverðu landinu, en slyddu við austurströndina. Dálítil slydda eða rigning sunnantil. Hiti víða um frostmark, en allt að 5 stigum syðst. Á þriðjudag: Austlæg átt og rigning eða snjókoma sunnan- og vestanlands, en annars úrkomuminna. Hiti 0 til 6 stig að deginum en rétt undir frostmarki fyrir norðan. Á miðvikudag: Útlit fyrir austlæga átt og dálitla rigningu eða snjókomu. Vaxandi austanátt með rigningu eða snjókomu sunnanlands undir kvöld.
Veður Mest lesið Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Viðskipti innlent Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Sjá meira