Stærsti fjárfestirinn í frumútboði Ísfélagsins heldur áfram að bæta við sig
![Ísfélagið var skráð á markað í Kauphöllina undir lok síðasta árs og er í dag með markaðsvirði upp á tæplega 130 milljarða.](https://www.visir.is/i/1E4DF56F8005467EBFB606DDB7899669B62FF836A4FBA7EFB87B79097CAD48C9_713x0.jpg)
Helstu íslensku lífeyrissjóðirnir í hluthafahópi Ísfélagsins hafa á undanförnum vikum og mánuðum haldið áfram að bæta við eignarhlut sinn í sjávarútvegsfyrirtækinu en það var skráð á markað undir lok síðasta árs. Sá fjárfestir sem var langsamlega umsvifamestur í frumútboði félagsins, Lífeyrissjóður verslunarmanna, hefur frá þeim tíma stækkað hlut sinn um meira en þriðjung í viðskiptum á eftirmarkaði.
Tengdar fréttir
![](https://www.visir.is/i/2EC0681BD1E5540A5DCD16C5EEB0CE6A7631BF9458A551F90BCC8860D463A2C8_308x200.jpg)
Félag Guðbjargar áformar að selja fyrir um tíu milljarða í útboði Ísfélagsins
Fjárfestingafélag Guðbjargar Matthíasdóttur, aðaleigandi Ísfélagsins, mun standa að sölu á miklum meirihluta þeirra bréfa sem verða seld til nýrra fjárfesta í almennu hlutafjárútboði sjávarútvegsfyrirtækisins sem hófst í morgun. Miðað við lágmarksgengið í útboðinu, sem metur Ísfélagið á 110 milljarða, þykir félagið nokkuð hagstætt verðlagt í samanburði við önnur sjávarútvegsfyrirtæki á markaði og verðmöt sem greinendur hafa gert í tengslum við skráninguna.
![](https://www.visir.is/i/1E4DF56F8005467EBFB606DDB7899669B62FF836A4FBA7EFB87B79097CAD48C9_308x200.jpg)
Lífeyrissjóðir stækka við hlut sinn í Ísfélaginu eftir skráningu á markað
Tveir lífeyrissjóðir, sem voru meðal umsvifamestu þátttakenda í almennu hlutafjárútboði Ísfélagsins undir lok síðasta árs, hafa stækkað talsvert við stöðu sína í fyrirtækinu með kaupum á eftirmarkaði síðustu vikur fyrir samtals vel á annan milljarð króna. Hlutabréfaverð Ísfélagsins hefur haldist nánast óbreytt frá fyrsta degi viðskipta þegar félagið var skráð á markað fyrir einum mánuði.