Innlent

Myndaði annan mann í sturtuklefanum

Árni Sæberg skrifar
Héraðsdómur Reykjavíkur kvað upp dóm yfir manninum þann 17. apríl síðastliðinn.
Héraðsdómur Reykjavíkur kvað upp dóm yfir manninum þann 17. apríl síðastliðinn. Vísir/Vilhelm

Karlmaður hefur verið dæmdur í þrjátíu daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að taka ljósmyndir af öðrum manni í sturtuklefa.

Í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur segir að maðurinn hafi verið ákærður fyrir brot gegn kynferðislegri friðhelgi, með því að hafa í júlí árið 2022, í sturtuklefa ótilgreinds baðstaðs án samþykkis og vitneskju manns tekið tvær ljósmyndir af honum á farsíma sinn, þar sem maðurinn baðaði sig nakinn í sturtuklefanum.

Játaði skýlaust og eyddi myndunum

Í dóminum segir að maðurinn hafi játað háttsemi sína skýlaust og krafist vægustu refsingar sem lög leyfa og að miskabótakrafa brotaþola yrði lækkuð. Brotaþoli fór fram á eina milljón króna í miskabætur.

Við ákvörðun refsingar leit dómurinn til þess að maðurinn hefði ekki áður gerst sekur um refsiverða háttsemi hér á landi. Hann hefði skýlaust játað brot sitt bæði fyrir dómi og á rannsóknarstigi málsins. Hann hafi sömuleiðis eytt þeim ljósmyndum sem um ræðir og því ekki um það að ræða að þær hafi verið birtar eða farið í dreifingu. Loks hafi hann lagt sig fram um að upplýsa málið.

Með vísan til þess þótti refsing mannsins hæfilega ákveðin þrjátíu daga fangelsisvist. Þá þótti rétt að fresta fullnustu refsingar og láta hana niður falla að tveimur árum liðnum, haldi maðurinn almennt skilorð.

Kostaði rúma milljón

Sem áður segir gerði brotaþoli í málinu miskabótakröfu upp á eina milljón króna. Í dóminum segir að með háttsemi sinni hafi maðurinn brotið gróflega gegn kynferðislegrir friðhelgi brotaþola. Aftur á móti hafi maðurinn, þegar hann var staðinn að verki, þá þegar eytt ljósmyndunum og þannig takmarkað það tjón sem af háttsemi hans hlaust.

Með vísan til þess þætti rétt að maðurinn greiði brotaþola 400 þúsund krónur í miskabætur.

Þá var manninum gert að greiða skipuðum verjanda sínum tæplega 500 þúsund krónur og réttargæslumanni9 brotaþola rúmlega 320 þúsund krónur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×