Gæti dregið til tíðinda á næstu klukkustundum Jón Þór Stefánsson skrifar 30. apríl 2024 19:59 Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur útskýrði stöðuna í kvöldfréttum Stöðvar 2. Vísir/Arnar Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur telur klukkustundaspursmál í minnsta lagi og dagaspursmál í mesta lagi í að það fari að draga til tíðinda vegna kvikusöfnunnar undir Svartsengi.
Þetta kom fram í viðtali við hann í kvöldfréttum Stöðvar 2. „Ég held að það sé líklegt að það fari eitthvað að gerast, en spurningin er: Hvað gerist? Eins og staðan er í dag erum við með kviku sem streymir úr dýpri kvikugeymslu sem er á átta til tólf kílómetra dýpi. Hún er mjög stór, það er mikil kvika í henni sem streymir upp eftir gosrásinni. Hluti af henni fer alla leið uppá yfirborðið en hluti hefur verið að fara í þetta grynnra í geymsluhólf sem er undir Svartsengi. Núna er það orðið fullt og þá er spurningin: Hvernig er áframhaldið?“ Þorvaldur segir einn möguleika vera að kvikan sem áður fór í grynnra hólfið fari og bætist við það sem komi nú þegar á yfirborðið á meðan myndi það sem er í hólfinu kólna. Annar möguleiki sé að kvikan fari af stað úr hólfinu, en flæði upp úr sömu sprungu. Það myndi þýða að gosflæðið myndi aukast enn meira en í fyrri möguleikanum. Hvenær gerist þetta? Hvenær haldið þið að eitthvað gerist? „Þetta er komið á það stig að maður býst við því að þetta gerist bara þá og þegar. Ég myndi segja að þetta geti verið klukkustundir, og ekki mikið meira en dagar.“
Eldgos og jarðhræringar Eldgos á Reykjanesskaga Mest lesið Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Innlent Ferðamannarúta kyrrsett í aðgerðum lögreglu Innlent Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Innlent Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Innlent Bíll fullur af bensínbrúsum lekur Innlent Sváfu úti á palli með barnið en fá húsið ekki bætt Innlent Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Innlent Breyttur tónn og reiður yfir gagnrýni vegna flugvélagjafarinnar Erlent Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit Innlent Leitar stolins bíls: „Eins og hann sé bara á rúntinum“ Innlent Fleiri fréttir Flugleiðir á barmi gjaldþrots gátu ekki haldið Cargolux Verðhækkanir varpa skugga á grillsumarið mikla Isavia fær áheyrn um hvort reka hafi mátt mann vegna aldurs Laupur vekur mikla athygli sundlaugagesta í Árbæjarlaug Fórnuðu gömlu húsi fyrir slökkviliðsæfingu Telur líkur á að starfslok Úlfars tengist útlendingapólitík Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Leitar stolins bíls: „Eins og hann sé bara á rúntinum“ Sváfu úti á palli með barnið en fá húsið ekki bætt Ófremdarástand á Hverfisgötu og verðhækkanir á grillmat „Hann breytir börnunum okkar í nikótínþræla“ Þingmenn vilja vita meira um hvers vegna Úlfar hætti störfum Ferðamannarúta kyrrsett í aðgerðum lögreglu Bíll fullur af bensínbrúsum lekur Fjórtán hvíldartímabrot á 28 dögum Skiptar skoðanir á vistaskiptum Úlfars sem hætti á miðnætti Bílar Íslendinga ekki tryggðir sé þeim stolið erlendis „Maður heyrir svona drunur áður en bylgjan kemur“ Helsti valdamaður flugsins var oftast utan sviðsljóssins Fljótandi ruslsuga fjarlægir rusl úr sjónum við gömlu höfnina Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit Ökumenn í tékki á Suðurlandsvegi og Grímsey skelfur „Jómfrúarræður“ séu barn síns tíma Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Ekki á dagskrá að flýta atkvæðagreiðslu um ESB-viðræður Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Grunur um frelsissviptingu í miðbænum Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Sjá meira