Óðinn tvöfaldur meistari i Sviss: Markahæstur í oddaleiknum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. júní 2024 15:46 Óðinn Þór Ríkharðsson var öflugur með Kadettan á tímabilinu. vísir/Hulda Margrét Óðinn Þór Ríkharðsson og félagar í Kadetten Schaffhausen eru tvöfaldir meistarar í svissneska handboltanum eftir sigur í oddaleik um titilinn í dag.
Kadetten vann þá sjö marka heimasigur á HC Kriens-Luzern, 32-25, og þar með úrslitaeinvígið 3-2. Þetta er í fjórtánda sinn sem félagið verður svissneskur meistari en sá fyrsti kom í hús árið 2005. Kadettan hafði fyrr í vetur tryggt sér bikarmeistaratitilinn. Liðið er svissneskur meistari þriðja árið í röð en vann nú tvöfalt í fyrsta sinn á þessum tíma. Þetta er í fyrsta sinn í átta ár sem Kadetten vinnur bæði deild og bikar. Óðinn Þór var að venju öflugur. Hann nýtti öll níu skotin sín í bikarúrslitaleiknum fyrr í vetur og var með átta mörk úr níu skotum í oddaleiknum í dag. Fimm marka hans komu úr vítum. Hann var marahæsti leikmaður Kadetten í leiknum. Kadetten lenti 1-0 undir í einvíginu með því að tapa fyrsta leiknum á heimavelli en vann svo tvo leiki í röð. Kriens-Luzern tyggði sér oddaleik með sex marka sigri á heimavelli í fjórða leiknum. Kadetten byrjaði ekki vel og var komið þremur mörkum undir, 4-7, þegar fyrri hálfleikurinn var hálfnaður. Kadetten jafnaði í 7-7 og komst síðan yfir 12-11 með marki Óðins rétt fyrir hálfleik. Staðan var hins vegar jöfn í hálfleik, 12-12. Óðinn nýtti öll þrjú skotin sín í fyrri hálfleiknum en eitt markanna kom úr víti. Óðinn skoraði fyrsta mark seinni hálfleiks en Kadetten byrjaði hálfleikinn vel og náði strax tveggja marka forystu. Óðinn kom liðinu síðan í fyrsta sinn þremur mörkum yfir í stöðunni 17-14 með sínu sjötta marki í leiknum. Eftir að var leikurinn í öruggum höndum heimamanna.
Handbolti Mest lesið Lungað féll saman hjá NBA-stjörnu Körfubolti „Ég er bara í sjokki ennþá“ Sport „Annaðhvort eru bæði brotin víti eða hvorugt“ Enski boltinn Varði skot mótherja með skónum sínum Körfubolti Vilja núna taka fimmtíu ára gamlan titil af Marokkó Fótbolti Hér eftir verður það refsivert að smygla sér inn á leiki Enski boltinn Reglur sem landsbyggðarlið vildu og Þór þarf að greiða hundruð þúsunda Körfubolti Besta sætið: Þarf að reka Óla? Sport Maguire fékk rautt og United missti tvívegis niður forystuna Enski boltinn Yfirlýsing Liverpool: „Leikmenn okkar eru manneskjur en ekki skotmörk“ Enski boltinn Fleiri fréttir Þórir ráðleggur þjálfurum Noregs líka í þrjátíu prósent starfi Janus fær ekki að leika listir sínar í Las Vegas Strákarnir okkar spila HM þar sem Íslendingar eru dáðir og dýrkaðir „Vörnin var ekki nægilega góð og við eigum inni þar“ „Verðum að ná sigri í þessu verkefni“ Uppgjörið: Ísland - Svíþjóð 33-35 | Appelgren gerði útslagið Bronslið Dags Sig burstaði Svisslendinga í fyrsta leik eftir EM Frábært að sleppa við austantjaldið Heilluðust af Ölfu Brá á HM og sömdu við hana Mætir með vænt glóðarauga: „Þetta var smá barningur“ Berta Rut snýr heim í Hauka Deildarmeistarar Vals unnu nauman sigur fyrir norðan Uppgjörið: Stjarnan - Fram 34-34 | Stjarnan heldur lífi í fallsætisbaráttunni „Ekki endilega það sem maður vildi“ Leiðtoginn Sigvaldi fer til Þýskalands Alfreð með skýrt svar: „Þeir verða að ráða framhaldinu“ Strákarnir okkar slógu í gegn í Smáralindinni „Allt of snöggur og óvæntur endir“ Hægt að hitta handboltahetjurnar í dag Enginn slaki gefinn Hótar eigin leikmönnum og þjálfurum Ísak dró sig úr hópnum gegn Svíum VIP-miðar í boði til að komast nær strákunum okkar Viggó og Andri fengu skell gegn meisturunum Nýbakaði faðirinn með níu mörk Íslendingaliðið úr leik eftir tap í undanúrslitum Víkingur Reykjavík upp í Olís deildina „Þetta er ekki búið“ Sara Dögg í miklum ham er ÍR styrkti stöðu sína Valur - Fram 32-31 | Risaleikur Lovísu kláraði Fram Sjá meira