New York Times lofar Snertingu Svava Marín Óskarsdóttir skrifar 15. júlí 2024 14:00 Snerting er tekin upp í Japan, London og á Íslandi. Baltasar Breki Semper Sýningar á kvikmyndinni Snerting í leikstjórn Baltasars Kormáks hófust í Bandaríkjunum síðastliðinn föstudag. Í aðdraganda frumsýningarinnar hefur myndin hlotið frábæra dóma hjá þarlendum gagnrýnendum.
Fjölmiðlar á borð við New York Times, Wall Street Journal og TIME, fagtímaritin Variety og Hollywood Reporter, ásamt áhrifamiklum netmiðlum á borð við IndieWire, Mashable, Screen Daily og Roger Ebert. Þá segir gagnrýnandi hins áhrifamikla vefmiðils Movieweb í dómi sínum að Snerting (Touch) sé besta mynd sem komið hafi í bíó í Bandaríkjunum það sem af er þessu ári. Á vefsíðunni Rotten Tomatoes, sem dregur saman umsagnir gagnrýnenda, er kvikmyndin með 95% í einkunn. Gagnrýnandi TIME, Stephanie Zacharek, tekur ekki síður djúpt í árina: „Snerting er mynd leikstjóra sem leyfir sér að láta kylfu ráða kasti og hugsa með hjartanu, og með því fær hann okkur áhorfendur til að trúa því að við getum það líka.“ Í New York Times segir: „Nærfærinn leikur og gífurlega áhrifamikil flétta gerir Snertingu að sígildri vasaklútamynd að viðbættri einstaklega næmri útfærstu á ást fólks af ólíkum bakgrunni.“ Í Variety segir: „Þegar upp er staðið er Snerting einstaklega áhrifamikil og mannleg mynd um fólk sem endurreisir líf sitt eftir skelfilegan missi með því vinna bug á sorginni með kjark og ást að vopni. Og það er ekkert sem hefur jafn djúpstæð áhrif á áhorfendur og að verða vitni að því.“ Ríkuleg uppskera „Það er ótrúlega gefandi að lesa lof um kvikmyndina og þá sérstaklega þegar verið er að hlaða lofi á samstarfsfólk mitt. Fólki sem hefur gefið allt í þessa mynd og uppsker nú ríkulega. Leikarar, listrænt samstarfólk, tæknimenn og allir aðrir, sem lögðu hönd á plóginn. Nú þegar Snerting er að hefja heimsreisu sína er einnig vert að þakka stjórnvöldum, Kvikmyndamiðstöð Íslands og öllum þeim sem hafa haft trú á íslenskri menningu hér heima og erlendis,“ segir Baltasar Kormákur um viðtökurnar ytra. Það er hið þekkta kvikmyndaver Focus Features sem fer með réttinn og dreifinguna á Snertingu í Bandaríkjunum en utan þeirra er Universal Pictures í því hlutverki. Í spilaranum hér að neðan má sjá fyrstu Kitluna úr Snertingu. Mikið lof um allan heim Myndin er byggð á samnefndri skáldsögu Ólafs Jóhanns Ólafssonar, sem var mest selda bókin á Íslandi árið 2020 og hlaut mikið lof gagnrýnenda. Hún er sýnd í Smárabíó, Laugarásbíó, Bíó Paradís og völdum kvikmyndahúsum á landsbyggðinni. Kvikmyndin segir sögu Kristófers, eldri manns sem stendur á tímamótum og leitar svara við áleitnum spurningum úr fortíð sinni. Hvað varð um stúlkuna sem hvarf sporlaust úr lífi hans fimmtíu árum áður?Sagan teygir sig víða um heim og ferðalag Kristófer ber hann þvert yfir hnöttinn. Á leið sinni rifjar hann upp sælar minningar frá sumrinu sínu í London 1969. Egill Ólafsson fer með aðalhlutverkið sem Kristófer. Snerting hefur hlotið mikið lof gagnrýnanda og áhorfanda á Íslandi en hér var hún frumsýnd í maí og er enn sýnd við góða aðsókn í kvikmyndahúsum.
Tengdar fréttir Óbirt myndefni úr Snertingu í nýju tónlistarmyndbandi Högna Tónlistarmaðurinn Högni Egilsson og Rvk Studios hafa gefið út tónlistarmyndband í flutningi Högna við lokalag kvikmyndarinnar Snertingar, sem nú er í sýningu í kvikmyndahúsum landsins. 5. júlí 2024 18:05 Snerting Egils Ólafssonar við lífið og tilveruna Egill Ólafsson segir mikilvægt að hreyfa sig til að vinna gegn framþróun Parkinson sjúkdómsins. Heimir Már slóst í gönguferð með Agli þar sem þeir ræddu um hlutverk hans í kvikmyndinni Snertingu og allt milli himins og jarðar. 23. maí 2024 20:01 Egill mætti með barnabörnin á forsýningu Snertingar Hátiðarforsýning á íslensku kvikmyndinni Snertingu í leikstjórn Baltasar Kormáks fór fram með pompi og prakt í Smárabíó í gærkvöldi. Sýningin var gríðarlega vel sótt og voru þar meðal annars alþjóðlegar stórstjörnur sem vinna nú með Baltasar að þáttagerð hér á landi. 21. maí 2024 15:15 Frumsýning á Vísi: Fyrsta stiklan úr Snertingu Stikla úr kvikmyndinni Snerting eftir Baltasar Kormák er komin út. Baltasar segist alltaf hafa verið meiri kitlumaður frekar en stiklumaður. Hann segist ekki geta beðið eftir að landsmenn fái loksins að bera myndina augum. 24. apríl 2024 15:02 Fyrsta plakatið og önnur kitlan úr Snertingu Snerting, nýjasta kvikmynd Baltasars Kormáks, verður frumsýnd á Íslandi 29. maí næstkomandi. Önnur kitlan úr myndinni er komin í loftið. 16. apríl 2024 13:46 Frumsýning á Vísi: Fyrsta kitlan úr Snertingu Snerting, nýjasta kvikmynd Baltasars Kormáks, verður frumsýnd á Íslandi 29. maí næstkomandi. Myndin er byggð á samnefndri skáldsögu Ólafs Jóhanns Ólafssonar, sem var mest selda bókin á Íslandi árið 2020 og hlaut mikið lof gagnrýnenda. 11. apríl 2024 13:14 Mest lesið Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Lífið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Lífið Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Lífið Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum Lífið Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Lífið Qualley og Antonoff í sundur Lífið Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Lífið Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Menning „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Lífið Fleiri fréttir Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Sjá meira
Óbirt myndefni úr Snertingu í nýju tónlistarmyndbandi Högna Tónlistarmaðurinn Högni Egilsson og Rvk Studios hafa gefið út tónlistarmyndband í flutningi Högna við lokalag kvikmyndarinnar Snertingar, sem nú er í sýningu í kvikmyndahúsum landsins. 5. júlí 2024 18:05
Snerting Egils Ólafssonar við lífið og tilveruna Egill Ólafsson segir mikilvægt að hreyfa sig til að vinna gegn framþróun Parkinson sjúkdómsins. Heimir Már slóst í gönguferð með Agli þar sem þeir ræddu um hlutverk hans í kvikmyndinni Snertingu og allt milli himins og jarðar. 23. maí 2024 20:01
Egill mætti með barnabörnin á forsýningu Snertingar Hátiðarforsýning á íslensku kvikmyndinni Snertingu í leikstjórn Baltasar Kormáks fór fram með pompi og prakt í Smárabíó í gærkvöldi. Sýningin var gríðarlega vel sótt og voru þar meðal annars alþjóðlegar stórstjörnur sem vinna nú með Baltasar að þáttagerð hér á landi. 21. maí 2024 15:15
Frumsýning á Vísi: Fyrsta stiklan úr Snertingu Stikla úr kvikmyndinni Snerting eftir Baltasar Kormák er komin út. Baltasar segist alltaf hafa verið meiri kitlumaður frekar en stiklumaður. Hann segist ekki geta beðið eftir að landsmenn fái loksins að bera myndina augum. 24. apríl 2024 15:02
Fyrsta plakatið og önnur kitlan úr Snertingu Snerting, nýjasta kvikmynd Baltasars Kormáks, verður frumsýnd á Íslandi 29. maí næstkomandi. Önnur kitlan úr myndinni er komin í loftið. 16. apríl 2024 13:46
Frumsýning á Vísi: Fyrsta kitlan úr Snertingu Snerting, nýjasta kvikmynd Baltasars Kormáks, verður frumsýnd á Íslandi 29. maí næstkomandi. Myndin er byggð á samnefndri skáldsögu Ólafs Jóhanns Ólafssonar, sem var mest selda bókin á Íslandi árið 2020 og hlaut mikið lof gagnrýnenda. 11. apríl 2024 13:14