Carsley líklegastur til að stýra Englandi gegn strákunum hans Heimis Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 7. ágúst 2024 13:11 Lee Carsley hefur gert góða hluti með enska U-21 árs landsliðið. getty/Matt McNulty Lee Carsley, þjálfari enska U-21 árs landsliðsins, mun væntanlega stýra A-landsliðinu í næstu leikjum þess.
Enska knattspyrnusambandið er í leit að þjálfara fyrir A-landsliðið eftir að Gareth Southgate hætti í kjölfar Evrópumótsins í Þýskalandi þar sem England tapaði í úrslitum fyrir Spáni. Næstu leikir enska landsliðsins eru gegn Írlandi og Finnlandi í Þjóðadeild Evrópu í næsta mánuði. Leikur Írlands og Englands verður fyrsti leikur Íra undir stjórn Heimis Hallgrímssonar. Sky Sports greinir frá því að líklegast sé að enska knattspyrnusambandið verði ekki búið að ráða landsliðsþjálfara til frambúðar fyrir leikina gegn Írlandi og Finnlandi og Carsley verði því falið að stýra Englandi í þeim. Undir stjórn Carsleys varð enska U-21 árs landsliðið Evrópumeistari í fyrra. Liðið hefur unnið 23 af 29 leikjum síðan hann tók við því fyrir þremur árum. Líkt og Carsley var Southgate þjálfari U-21 árs landsliðsins áður en hann tók við A-landsliðinu, fyrst til bráðabirgða í fjórum leikjum áður en hann fékk fjögurra ára samning. Carsley, sem er fimmtugur, lék lengi með Everton og þá spilaði hann fjörutíu landsleiki fyrir Írland.
Þjóðadeild karla í fótbolta Enski boltinn Fótbolti Mest lesið Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Sport Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Sport „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Enski boltinn Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Enski boltinn Infantino beðinn um að mæta ekki á barnamót sem FIFA fjármagnar Fótbolti Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn Myndasyrpa frá Reykjavíkurmaraþoninu: Bleyta, bætingar og bros Sport Brentford tók Tottenham í karphúsið Enski boltinn Tvöfaldur heimsmeistari látinn eftir skotárás Sport Gísli Þorgeir með níu mörk í níu skotum þegar Magdeburg vann Ofurbikarinn Handbolti Fleiri fréttir De Zerbi ósáttur: „Vorum ekki tilbúnir að berjast“ Brentford tók Tottenham í karphúsið Góð byrjun hjá strákunum hans Moyes Glæsimark kom ekki í veg fyrir nýliðasigur Tryggði sigur beint úr aukaspyrnu undir blálokin „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Curtis Jones farinn til Inter Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Konsa orðinn leikmaður Arsenal Spurs að spreða: Þrefalt dýrari eftir tvö mörk á tveimur árum Eiður ánægður með hvað Chelsea hefur losað sig við marga leikmenn Liverpool fær höfnun frá Brighton Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Liverpool samþykkir tilboð í Curtis Jones Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Marcus Rashford búinn að fá nóg Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Lík fannst á leikvangi Charlton Baleba færist nær United Arsenal nálgast kaup á Konsa Byrjaðir að undirbúa lífið án Martínez: Keyptu japanska landsliðsmarkvörðinn Ætlar að gera Arsenal að besta liði í heimi Sjá meira