Sterling ekki heldur í hóp hjá Chelsea í Sambandsdeildinni Ágúst Orri Arnarson skrifar 21. ágúst 2024 07:51 Raheem Sterling virðist ekki vera í náðinni hjá nýja stjóranum Enzo Maresca. James Gill - Danehouse/Getty Images Raheem Sterling var ekki tilnefndur í leikmannahóp Chelsea fyrir umspilsleik í Sambandsdeildinni gegn Servette á morgun.
Framtíð Sterling hjá félaginu er í hættu. Hann var ekki heldur í hóp þegar Chelsea spilaði fyrsta leik í ensku úrvalsdeildinni á sunnudag gegn Manchester City. Þá sendi Sterling frá sér yfirlýsingu þar sem hann krafðist svara og skýringar á hlutverki sínu hjá félaginu. Knattspyrnusérfræðingar ytra sögðu Sterling vera að bregðast liðsfélögum sínum. Sterling var ekki sá eini sem var ekki tilnefndur í leikdagshópinn, Chelsea er nefnilega með 42 leikmenn á skrá og því engin leið að útnefna alla. Leikmannahópurinn er meira að segja orðinn svo stór að ráðast þurfti í framkvæmdir á æfingasvæði félagsins svo allir kæmust fyrir. Enzo Maresca, nýr knattspyrnustjóri Chelsea, sagði á sunnudaginn að hann hefði viljað hafa Sterling í hópnum, en hann hefði líka viljað hafa hina leikmennina. Það sé einfaldlega ekki pláss fyrir þá. Framundan er tveggja leikja umspilseinvígi við Servette sem Sterling mun ekki taka þátt í en hann gæti verið tilnefndur í leikmannahópinn ef liðið kemst áfram í riðlakeppni Sambandsdeildarinnar. Þá þykir líklegra að Sterling fari frá félaginu, honum virðist ekki ætlað stórt hlutverk hjá Chelsea, sem hefur bætt við sig ellefu leikmönnum í sumar og er að reyna að losa menn af launaskrá.
Enski boltinn Mest lesið Gylfi sárkvalinn: Missti andann og fer í myndatöku Fótbolti Dásamaði Ronaldo: „Hættir aldrei að vera merkasta táknmynd Portúgals“ Fótbolti Arnar bregst við banni og meiðslum: Þrír nýir með landsliðinu til Tallinn Fótbolti Ánægður með óvænt hrós: „Gaman að heyra þetta frá þér“ Fótbolti „Við þurfum að gera margt betur“ Körfubolti Myndaveisla: Flottur sigur Íslands og fötum fækkað í stúkunni Fótbolti FH hélt Selfossi á botninum Handbolti Dagskráin í dag: Haaland í Portúgal, Formúla 1 og kapphlaup Blika og FH-inga Sport Hundur truflaði sigur Skota í Skopje Fótbolti Glódís hélt hreinu í toppslag og Bayern náð 48 í röð án taps Fótbolti Fleiri fréttir Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Sjá meira