Gular viðvaranir vegna hvassviðris og úrhellisrigningar Atli Ísleifsson skrifar 23. ágúst 2024 07:16 Það verður vindasamt víða á landinu í dag. Vísir/RAX Lægð er nú stödd norðaustur af landinu og liggur frá henni allhvass eða hvass norðan vindstrengur á vesturhelmingi landsins, en yfirleitt hægari austantil.
Á vef Veðurstofunnar segir að lægðin valdi einnig talsverðri úrkomu á Norðurlandi og Vestfjörðum, en þá aukist líkur á aurskriðum og vatnavöxtum í ám. Varasamt ferðaveður á þessum slóðum, og eru gular viðvaranir vegna úrhellis og hvassviðris í gildi á norðan- og vestanverðu landinu fram á kvöld. Gular viðvaranir eru í gildi norðan- og vestantil fram á kvöld.Veðurstofan Gera má ráð fyrir að hiti verði á bilinu fimm til fjórtán stig þar sem verður mildast syðst. „Í kvöld og í nótt dregur smám saman úr vindi og úrkomu. Norðan kaldi á morgun og víða dálítil væta, en yfirleitt bjart og þurrt sunnanlands,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 15 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Norðan og norðvestan 5-13 m/s og víða dálítil rigning eða súld, en bjart með köflum sunnan heiða. Hiti 6 til 15 stig, mildast syðst. Á sunnudag: Norðlæg eða breytileg átt, 3-10 og dálítil væta á víð og dreif, en rigning á Austurlandi. Yfirleitt léttskýjað syðra. Hiti 4 til 13 stig, hlýjast á Suðurlandi. Á mánudag og þriðjudag: Hæg breytileg átt og víða bjart með köflum, en skýjað og lítilsháttar væta austantil. Hiti 7 til 14 stig. Á miðvikudag: Fremur hæg norðaustlæg átt með vætu á Norðausturlandi, en bjartviðri sunnan- og vestanlands. Hiti 8 til 15 stig. Á fimmtudag: Útlit fyrir austlæga átt og skúrir, en yfirleitt þurrt fyrir norðan. Hlýnar í veðri.
Veður Mest lesið Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Viðskipti innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Erlent Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Veður Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Innlent Fleiri fréttir Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Sjá meira