Dagarnir miklu fleiri hjá Davíð og Ingibjörgu Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 31. ágúst 2024 07:01 Davíð Oddsson og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fengu greidda 93 daga annars vegar og 143 daga hins vegar í ótekið orlof þegar þau sátu í stóli borgarstjóra. Davíð er í dag ritstjóri Morgunblaðsins en Ingibjörg starfaði síðast sem forstjóri Lýðræðis- og mannréttindaskrifstofu Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu. Dagur B. Eggertsson fékk greidda 69 ótekna orlofsdaga um áramótin. Vísir/SaraRut Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fékk greidda 143 ótekna orlofsdaga í starfi borgarstjóra. Dagarnir voru 93 hjá Davíð Oddssyni en fyrirkomulag við greiðslu ótekin orlofs var tekið upp þegar hann var borgarstjóri. Markús Örn Antonsson fékk greidda út 90 ótekna orlofsdaga.
Þetta kemur fram í svari Reykjavíkurborgar við fyrirspurn fréttastofu. Þar segir að orlofið hafi verið greitt út með reglulegum hætti til ársins 2004 en síðan þá hafi uppgjör ótekinna orlofsdaga farið fram við starfslok hjá öllu starfsfólki Reykjavíkurborgar. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri lét af störfum sem borgarstjóri um áramótin eftir tíu ára starf. Morgunblaðið greindi frá því á dögunum að Dagur hefði fengið greiddar 7,9 milljónir króna í orlofsuppgjör. Um er að ræða 69 daga þar sem 21 dagur er orlofs sem hann hafði unnið sér inn á þessu orlofsári og svo 48 dagar í uppsafnað orlof. Fréttastofa óskaði eftir upplýsingum hjá Reykjavíkurborg um greidda orlofsdaga fyrri borgarstjóra til samanburðar. Í svörum Reykjavíkurborgar er að finna upplýsingar síðustu rúmu fjörutíu ára sem taka til níu borgarstjóra auk Dags. Í skriflegu svari Evu Bergþóru Guðbergsdóttur, samskiptastjóra Reykjavíkurborgar, segir að samkvæmt gögnum borgarinnar virðist hafa verið ákveðið árið 1989 að greiða óteknar orlofstundir til borgarstjóra. Frá 1989 hafi óteknar orlofsstundir verið greiddar út reglulega, en frá 2004 hafi uppgjör ótekinna orlofsdaga farið fram við starfslok eins og hjá öðru starfsfólki Reykjavíkurborgar. Að neðan má sjá hve marga ónýtta orlofsdaga síðustu tíu borgarstjórar fengu greidda: Dagur B. Eggertsson í Samfylkingunni lét af starfi borgarstjóra um áramótin síðustu.Vísir/Arnar Dagur B. Eggertsson (16.6.2014 - 31.12.2023) Uppgjör: 69 dagar. Áunnið orlof fyrir þetta orlofstímabil var 21 dagur og ótekið eldra orlof var 48 dagar. Jón Gnarr var borgarfulltrúi Besta flokksins þegar hann var borgarstjóri.Vísir/Vilhelm Jón Gnarr (15.6.2010 – 15.6.2014) Uppgjör 2014: 47,6 dagar (samkvæmt viðverukerfi, uppgjör launaskrifstofu ekki staðfest – beðið gagna) Hanna Birna Kristjánsdóttir var borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins þegar hún varð borgarstjóri.Vísir/Vilhelm Hanna Birna Kristjánsdóttir (21.8.2008 – 15.6.2010) Uppgjör 2010: 41 dagur Ólafur F. Magnússon var borgarfulltrúi F-listans þegar hann varð borgarstjóri árið 2008. Ólafur F. Magnússon (24.1.2008 – 21.8.2008) Uppgjör 2008: 10 dagar Sjálfstæðismaðurinn Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson var borgarfulltrúi í tæp þrjátíu ár. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson (13.6.2006 – 16.10.2007) Uppgjör 2007: 23 dagar Steinunn Valdís Óskarsdóttir var borgarstjóri í eitt og hálft ár. Hún var borgarfulltrúi Samfylkingarinnar. Steinunn Valdís Óskarsdóttir (30.11.2004 – 13.6.2006) Uppgjör 2006: 21 dagur Forsíða Alþýðublaðsins árið 1994. Ingibjörg Sólrún var borgarfulltrúi R-listans. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir (13.6.1994 – 1.2.2003) Uppgjör 1995: 12 dagar Uppgjör 1997: 22 dagar Uppgjör 1998: 30 dagar Uppgjör 2000: 18 dagar Uppgjör 2001: 16 dagar Uppgjör 2002: 18 dagar Uppgjör 2003 : 28 dagar Samtals: 143 dagar árin 1995-2003 Árni Sigfússon var borgarstjóri í Reykjavík og síðar bæjarstjóri í Reykjanesbæ. Hann var borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. Árni Sigfússon (17.3.1994-13.6.1994) Uppgjör 1994: 7.5 dagar Markús Örn Antonsson var borgarstjóri og síðar útvarpsstjóri. Hann var borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. Markús Örn Antonsson (16.7.1991-17.3.1994) Uppgjör 1992: 30 dagar Uppgjör 1993: 30 dagar Uppgjör 1994: 30 dagar Samtals: 90 dagar árin 1992-1994 Árið 1991 þegar Davíð vann Þorstein Pálsson í formannskjöri Sjálfstæðisflokksins. Í bakgrunni má sjá Ástríði Thorarensen og Hörð Sigurgeirsson. Davíð varð forsætisráðherra það ár eftir níu ár sem borgarstjóri.Vísir/GVA Davíð Oddsson (27.5.1982-16.7.1991) Uppgjör 1989: 56 dagar Uppgjör 1991: 37 dagar Samtals: 93 dagar 1989 vegna áranna 1982-1989 (56) og 1989-1991 (37). Uppgjör annarra bæjarstjóra Spegillinn á RÚV kannaði hvernig starfslokum bæjarstjóra í nágrannasveitarfélögunum hefði verið háttað. Í Garðabæ hætti Gunnar Einarsson nýlega eftir 17 ár í starfi, Haraldur Sverrisson eftir 15 ár í starfi í Mosfellsbæ og Ármann Kr. Ólafsson eftir tíu ár í Kópavogi. Í svörum sveitarfélaganna við fyrirspurn RÚV kom fram að vegna ótekins orlofs á orlofsárinu og uppsafnaðs orlofs hefði Gunnar fengið útgreiddar 7,8 milljónir í Garðabæ, Haraldur fékk 9,6 milljónir króna og Ármann fékk um sjö milljónir. Fréttin var uppfærð. Dagur fékk greiddar 7,9 milljónir við uppgjörið en ekki 9,7 milljónir. Mismunurinn voru launatengd gjöld Reykjavíkurborgar vegna uppgjörsins.
Borgarstjórn Kjaramál Reykjavík Samfylkingin Sjálfstæðisflokkurinn Tengdar fréttir Blöskrar myndbirting: „Er enginn fullorðinn sem vinnur þarna?“ Dagur B. Eggertsson forseti borgarráðs er verulega ósáttur við myndbirtingu af sér í Morgunblaðinu í dag. Hann sendir „aðstandendum Morgunblaðsins“ innilegustu samúðarkveðjur. 27. ágúst 2024 11:17 „Ritstjórinn ræður sér ekki fyrir bræði“ „Enn einn – en þó einhver vanstilltasti og orðljótasti leiðari Morgunblaðsins sem ég hef lesið birtist í morgun. Tilefnið ætti að vera ánægjuefni. Óvissunni hefur verið eytt um samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins með undirritun í gær. 22. ágúst 2024 15:03 Ekkert ólöglegt né óalgengt við uppsafnað orlof Lára V. Júlíusdóttir segir það vera samningsatriði á milli vinnuveitanda og launafólks hvað það getur tekið út ónotað orlof langt aftur í tímann. Það sé hvorki ólöglegt né óalgengt að orlof stjórnenda safnist upp þó svo að tilgangur laganna sé að tryggja launafólki frí. 20. ágúst 2024 23:05 Skoða mál þar sem fólk fékk ekki greitt uppsafnað orlof Stéttarfélagið Sameyki hefur til skoðunar mál þar sem starfsmönnum Reykjavíkurborgar var neitað um að fá orlof greitt aftur í tímann. 20. ágúst 2024 07:42 Skilur gagnrýni á háa orlofsgreiðslu Fyrrverandi borgarstjóri segist ekki hafa tekið fullt orlof í tíu ár sem útskýri tíu milljóna króna greiðslu til hans. Sömu reglur gildi um borgarstjóra og alla aðra starfsmenn Reykjavíkurborgar. 15. ágúst 2024 12:21 Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Rubio lentur á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Sjá meira
Blöskrar myndbirting: „Er enginn fullorðinn sem vinnur þarna?“ Dagur B. Eggertsson forseti borgarráðs er verulega ósáttur við myndbirtingu af sér í Morgunblaðinu í dag. Hann sendir „aðstandendum Morgunblaðsins“ innilegustu samúðarkveðjur. 27. ágúst 2024 11:17
„Ritstjórinn ræður sér ekki fyrir bræði“ „Enn einn – en þó einhver vanstilltasti og orðljótasti leiðari Morgunblaðsins sem ég hef lesið birtist í morgun. Tilefnið ætti að vera ánægjuefni. Óvissunni hefur verið eytt um samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins með undirritun í gær. 22. ágúst 2024 15:03
Ekkert ólöglegt né óalgengt við uppsafnað orlof Lára V. Júlíusdóttir segir það vera samningsatriði á milli vinnuveitanda og launafólks hvað það getur tekið út ónotað orlof langt aftur í tímann. Það sé hvorki ólöglegt né óalgengt að orlof stjórnenda safnist upp þó svo að tilgangur laganna sé að tryggja launafólki frí. 20. ágúst 2024 23:05
Skoða mál þar sem fólk fékk ekki greitt uppsafnað orlof Stéttarfélagið Sameyki hefur til skoðunar mál þar sem starfsmönnum Reykjavíkurborgar var neitað um að fá orlof greitt aftur í tímann. 20. ágúst 2024 07:42
Skilur gagnrýni á háa orlofsgreiðslu Fyrrverandi borgarstjóri segist ekki hafa tekið fullt orlof í tíu ár sem útskýri tíu milljóna króna greiðslu til hans. Sömu reglur gildi um borgarstjóra og alla aðra starfsmenn Reykjavíkurborgar. 15. ágúst 2024 12:21