Sunnanátt með rigningu en nokkuð hlýtt Magnús Jochum Pálsson skrifar 1. september 2024 09:38 Reykjavíkurtjörn að hausti. Vísir/Vilhelm Víðáttumikil lægð á Grænlandshafi beinir hlýju og röku lofti úr suðri til landsins. Í dag verður ákveðin sunnanátt með rigningu en það dregur úr úrkomu með morgninum.
Þetta kemur frá í veðurspá veðurstofunnar og hugleiðingum veðurfræðings. Seinnipartinn verður dálítil væta en bjartviðri á Norðausturlandi og hiti verður á bilinu tólf til 22 stig. Þó er enn varað við hættu á skriðuföllum og vatnavöxtum á sunnanverðum Vestfjörðum, Barðaströnd og Snæfellsnesi vegna talsverðrar eða mikillar rigning. Búast má við auknu afrennsli og vatnavöxtum í ám og lækjum sem eykur hættu á flóðum og er fólk hvatt til þess að sýna aðgát í nágrenni vatnsfalla. Gera má ráð fyrir að óbrúaðar ár verði torfærar Í hugleiðingum veðurfræðings segir að búist sé við hægari vindi á morgun og mildu veðri. Víða sunnangola síðdegis og dálítil væta með köflum í flestum landshlutum. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á mánudag: Suðlæg eða breytileg átt, þrír til tíu m/s og víða dálítil væta með köflum. Hiti tíu til sextán stig. Á þriðjudag: Norðvestan þrír til tíu m/s og dálítil væta norðaustantil, en lengst af bjart sunnan- og vestanlands. Hiti sjö til fimmtán stig, mildast syðst. Á miðvikudag og fimmtudag: Sunnan og suðvestan fimm til þrettán m/s og rigning, en bjart með köflum og úrkomulítið fyrir austan. Hiti tíu til nítján stig, hlýjast á Austurlandi. Á föstudag: Suðvestlæg átt, skýjað og stöku skúrir, en þurrt og bjart um landið norðaustanvert. Hiti níu til fjórtán stig. Á laugardag: Útlit fyrir suðlæga átt með vætu í flestum landshlutum. Hiti breytist lítið.
Veður Mest lesið Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Innlent „Þeir sem taka pening frá veðmálafyrirtækjum ættu að líta í eigin barm“ Innlent Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent Byrjaði skyndilega að taka konuna hálstaki og hélt í 40 sekúndur Innlent Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu Erlent Gagnrýnin byggð á misskilningi Innlent McConnell birtir mynd af sér á spítala Erlent Fleiri fréttir Væta vestantil en hlýjast fyrir austan Gular viðvaranir og allt að tuttugu og sjö stig Gular veðurviðvaranir í kortunum Bjart og allt að tuttugu og fimm stig á Austurlandi Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Dregur úr vætu síðdegis og hiti að átján stigum Hitatölurnar hækka fyrir austan Varhugaverðar hviður á Suðurlandi Víða allhvass vindur og úrkomubakki nálgast Spá sautján stiga hita á höfuðborgarsvæðinu Allt að sautján stiga hiti Bjart og hlýtt sunnan heiða Siggi stormur spáir góðu veðri um allt land Hlýjast fyrir austan Kaldi eða strekkingur á suðvestan- og vestanverðu landinu Væta með stífri norðaustanátt Stíf norðanátt með rigningu víða um land Allvíða skúrir og lægð nálgast Víða rigning en hiti að átján stigum Úrkoma í flestum landshlutum í dag Úrkoma víða og hiti að sextán stigum Víða skúraleiðingar og hiti að fimmtán stigum Sextán stig en líkur á síðdegisskúrum Bjartviðri suðvestanlands en líkur á skúrum Allhvasst suðaustantil og sums staðar rigning Viðrar vel til hátíðarhalda á höfuðborgarsvæðinu Hiti að átján stigum norðan og vestantil Austlæg átt og víða líkur á vætu 250 skjálftar en enginn gosórói að svo stöddu Áfram rólegheitaveður en líkur á síðdegisskúrum Sjá meira