Kynna niðurstöður Sjálfbærniássins Árni Sæberg skrifar 4. september 2024 08:48 Viðurkenningar eru veittar í Opna háskólanum. Anton Brink Niðurstöður Sjálfbærniássins 2024 verða kynntar þann 4. september kl. 9.15 í Opna háskólanum í Háskólanum í Reykjavík og fyrirtækjum sem skara fram úr veitt viðurkenning. Sjálfbærniásinn er nýr mælikvarði til að meta viðhorf almennings til frammistöðu íslenskra fyrirtækja og stofnana í sjálfbærni.
Í fréttatilkynningu um viðburðinn segir að mælingin sé svar við aukinni kröfu frá viðskiptavinum og öðrum hagaðilum á fyrirtæki að leggja áherslu á sjálfbærni. Að verkefninu standi Prósent, Langbrók og Stjórnvísi. Beina útsendingu frá kynningunni má sjá í spilaranum hér að neðan: Markmið Sjálfbærniássins: Að veita hlutlausar og samanburðarhæfar upplýsingar um viðhorf almennings til þess hvernig íslensk fyrirtæki standa sig í sjálfbærnimálum. Að hvetja íslensk fyrirtæki til að leggja enn meiri áherslu á sjálfbærni. Að hjálpa fyrirtækjum að skilja mikilvægi þess að upplýsa almenning um að stefnu sína og verkefni sem snúa að sjálfbærni og samfélagslegri ábyrgð. Að auka vitund neytenda um mikilvægi sjálfbærni og hvernig þeir geta haft áhrif með kauphegðun sinni. Að vera íslenskum fyrirtækjum hvatning til að leggja enn frekari áherslu á þessi mál. Á fimmta tug fyrirtækja mæld Í tilkynningu segir að rannsóknin hafi verið framkvæmd af rannsóknarfyrirtækinu Prósenti. Framkvæmdatími hafi verið frá janúar til ágúst 2024 og um hafi verið að ræða netkannanir sem voru sendar á handahófskennt úrtak úr könnunarhópi Prósents, sem inniheldur 15.000 Íslendinga, 18 ára og eldri. Könnunin samanstandi af sex spurningum sem kanni viðhorf neytenda til frammistöðu fyrirtækja í sjálfbærnimálum. Spurningarnar snúi meðal annars að því hvort fyrirtæki leggi sitt af mörkum til samfélagsins, hvort þau hugi að velferð viðskiptavina og hvort þau leitist við að lágmarka sóun. Í ár hafi 47 fyrirtæki verið mæld, sem starfa á fjórtán mismunandi mörkuðum. Á meðal þeirra markaða sem voru mældir séu fjarskipti, bankar, tryggingar, orkufyrirtæki og matvöruverslanir. Sérstakar viðurkenningar í boði Þá segir að viðurkenningar verði veittar á hverjum markaði fyrir sig auk þess sem fyrirtæki sem mælast með afbragðsgóða einkunn fái sérstaka viðurkenningu. Fyrirtæki sem fá viðurkenningu muni fá tækifæri til að nota merki Sjálfbærniássins í markaðsstarfi sínu, sem undirstriki frammistöðu þeirra í sjálfbærni að mati almennings. Vinningshöfum verði þannig veittur heiður sem geti styrkt orðspor og ímynd fyrirtækisins. „Við hjá Stjórnvísi höfum mikla trú á að Sjálfbærniásinn ýti undir jákvæða þróun í íslensku atvinnulífi og skapi sér sess sem mikilvæg viðurkenning til þeirra vinnustaða sem leggja áherslu á sjálfbærni og virkt framlag í baráttunni gegn loftslagsvánni. Við göngum því til þátttöku í þessu frumkvöðlaverkefni okkar góðu samstarfsaðila með mikilli tilhlökkun,“ er haft eftir Gunnhildi Arnardóttur, framkvæmdastjóra Stjórnvísi. „Við höfum lagt mikla vinnu í að þróa Sjálfbærniásinn með því að styðjast við mælikvarða sem hafa verið notaðir á alþjóðlegum mörkuðum. Leit okkar að besta mælikvarðanum tók um ár og í ár voru skoðuð 47 fyrirtæki á 14 mörkuðum. Mælingin sýnir skýra mynd af viðhorfi fólks til þeirra fyrirtækja sem eru mæld og við vonum að niðurstöðurnar verði hvatning til fyrirtækja að vanda enn frekar til verka í þessum málum og miðla upplýsingum um samfélagslega ábyrgð sína,“ er haft eftir Trausta Heiðari Haraldssyni, framkvæmdastjóra Prósents. Öll velkomin í tilkynningu segir að kynningin fari fram í Opna háskólanum í Háskólanum í Reykjavík. Öll sem hafi áhuga á sjálfbærnimálum og samfélagslegri ábyrgð fyrirtækja séu hvött til að mæta og kynna sér þetta nýja mælitæki sem geti haft mikil áhrif á íslenskt atvinnulíf. Í haust muni Opni háskólinn setja upp Sjálfbærniskólann í samstarfi við Festu. „Sjálfbærniásinn er mikilvægt skref í átt að aukinni sjálfbærni í íslensku samfélagi og hvetur fyrirtæki til að standa sig enn betur í þessum mikilvægu málum.“
Sjálfbærni Mest lesið Stefna á að hefja starfsemi á Möltu innan tíu vikna Viðskipti innlent Arnar Þór og Unnur Lilja skipta búi Play Viðskipti innlent „Það er svo langt síðan að við höfðum ekki trú á Play“ Viðskipti innlent Fallið frá kröfum um neyðarfjarskipti á hálendinu Viðskipti innlent Segir ekki honum að kenna að Play hafi farið á hausinn Viðskipti innlent Hrun í makríl og kolmunna Viðskipti innlent Bændaferðir færa sig í skemmtiferðasiglingar Viðskipti innlent Norðlensk framleiðsla sem er að slá í gegn á Íslandi Samstarf Snaps teygir anga sína út á Hlemm Viðskipti innlent Play með sex prósent flugsæta til og frá landinu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stefna á að hefja starfsemi á Möltu innan tíu vikna Snaps teygir anga sína út á Hlemm „Það er svo langt síðan að við höfðum ekki trú á Play“ Arnar Þór og Unnur Lilja skipta búi Play Bændaferðir færa sig í skemmtiferðasiglingar Fallið frá kröfum um neyðarfjarskipti á hálendinu Play með sex prósent flugsæta til og frá landinu Hrun í makríl og kolmunna Fall Play áfall en að einhverju leyti fyrirséð Segir ekki honum að kenna að Play hafi farið á hausinn Eðlilegt ef farið verður yfir eftirlit með flugfélögum Höggið á íslenska ferðaþjónustu ætti að vera takmarkað Þjóðarskútan sé „vel í stakk búin til að sigla milli skers og báru í úfnum sjó“ Gjaldþrotaskiptabeiðni Play tekin fyrir í héraðsdómi Atvinnuleysi 5,3 prósent í ágúst Kalla ráðherra og forstjóra Samgöngustofu fyrir samgöngunefnd Hækkun flugfargjalda muni skila sér í meiri verðbólgu Leik lokið hjá Play „Skrifast ekki á okkur að það hafi farið eins og er farið“ Icelandair geti ekki svarað fyrir orðræðuna Play kvartaði undan Icelandair þremur vikum fyrir gjaldþrot Loka Kristjánsbakaríi Hætta rekstri tveggja skipa í hagræðingarskyni Engin ást eftir milli flugmanna og stjórnenda Sömu miðarnir kosti nú 370 þúsund Koma fólkinu heim með fimmtán milljóna króna leiguflugi Fargjöld ekki hækkuð af ásettu ráði Samgöngustofa fundaði nýlega með Play og fékk gögn frá KPMG „Við erum ekki með öll eggin í sömu körfu“ „Hver fyrir sig hvað það varðar“ Sjá meira