Sjóðheitar og einhleypar inn í haustið Svava Marín Óskarsdóttir skrifar 23. september 2024 07:02 Listinn samanstendur af einhleypum og glæsilegum konum en er síður en svo tæmandi! Hvaða konu vantar á listann að þínu mati? Haustið er mætt í allri sinni dýrð, með gulum veðurviðvörunum og notalegum stundum innandyra. Árstíðin er oft talin sú rómantískasta þar sem kertaljós og notaleg stemning ræður ríkjum. Í samstarfi við álitsgjafa hefur Lífið á Vísi tekið saman lista af einhleypum, sjóðheitum og glæsilegum konum.
Guðrún Svava Egilsdóttir Áhrifavaldurinn Guðrún, sem er betur þekkt sem Gugga í gúmmíbát, er uppalin Hafnarfjarðarmær. Hún starfar sem ritari og aðstoðarkona hjá Kirópraktorstofu Íslands samhliða því að nema viðskiptafræði við Háskólann á Bifröst. Gugga er 21 árs gömul og mikil stemningskona sem er gaman að vera í kringum. Gugga er með tæplega 11 þúsund fylgjendur á Instagram og er síminn henni mikilvægur.Aðsend Bríet Ísis Elfar Tónlistarkonan Bríet er ein skærasta stjarna landsins og hefur vakið mikla athygli í íslensku tónlistarlífi á undanförnum árum. Hún er ekki aðeins stórglæsileg heldur ein hæfileikaríkasta kona landsins! 25 ára og aldrei litið betur út! Birta Abiba Birta er 24 ára sjarmerandi ofurskvísa sem er búsett í New York, þar sem hún starfar sem fyrirsæta. Ekki nóg með það að vera ein farsælasta fyrirsæta okkar Íslendinga, átti hún stórleik í tónlistarmynbandi við lagið Krumla með strákabandinu IceGuys. Inga Lind Karlsdóttir Inga Lind er einn af eigendum framleiðslufyrirtækisins Skot productions og hefur farið mikinn í framleiðslu undanfarin ár. Þar áður var starfaði hún í fjölmiðlum. Inga Lind er 48 ára gömul og ein glæsilegasta kona landsins, í toppformi og mikil útivistarkona. Ásdís Mercedes Spanó Ásdís hefur áralanga reynslu í listheiminum og hefur þróað sérkenni sem endurspeglast í verkum hennar. Eftir útskrift frá Listaháskóla Íslands, þar sem hún lagði grunninn að ferlinum, stundaði hún framhaldsnám í Bretlandi og á Ítalíu. Samhliða listsköpuninni rekur hún Multis.is, vettvang sem sameinar skapandi greinar og listmannaþjónustu, og þjónar sem miðpunktur fyrir listamenn að tengjast og þróa verk sín. Ásdís er 51 árs gömul, stórglæsileg og mikil fyrirmynd fyrir aðrar konur! Kristín Ásta Kristinsdóttir Anna Guðný Ingvarsdóttir Áhrifavaldurinn Anna Guðný starfar sem flugfreyja hjá Icelandair. Hún er sannkölluð ofurskvísa með einstaklega flottan stíl líkt og fylgjendur hennar á Instagram fá að kynnast. Anna Guðný er 25 ára og algjört fiðridi sem elskar ferðalög, tísku og förðun. Inga María Hjartardóttir Hin þrítuga Inga María starfar markaðssérfræðingur hjá Símanum. Hún er ekki bara glæsileg, heldur líka einstaklega klár og skapandi. Inga María var áberandi í kosningateymi Höllu Tómasdóttur forseta Íslands, þar sem hún lagði áherslu á að ná til unga fólksins í landinu. Með nýstárlegum hugmyndum og aðferðum tókst henni að skapa áhuga og þátttöku meðal yngri kjósenda. Kristín Ólafsdóttir Stína er 31 árs, ljóshærð, hnyttin og sjarmerandi fjölmiðlakona sem laðar að sér athygli með skemmtilegum persónutöfrum og einstöku orðfæri. Hún er þekkt fyrir lipurleika sinn í fjölmiðlastarfi og hæfileikann til að hrífa fólk með sér, bæði á skjánum og utan hans. Stína er ekki bara hæfileikarík heldur líka fyndin og hefur einstakt lag á að setja bros á andlit fólks. Arnar Halldórsson Tinna Aðalbjörnsdóttir Tinna hefur lengi verið áhrifavaldur í tískuheiminum og hefur með árunum fest sig í sessi sem ein helsta fyrirmynd kvenna þegar kemur að stíl og framkomu. Sem eigandi og Casting Director hjá Ey Agency hefur hún ekki aðeins haft mikil áhrif á þróun módelskrifstofunnar heldur einnig mótað feril margra fyrirsæta. Tinna er þekkt fyrir einstakan smekk og þor til að prófa nýja strauma og stefnur! Tinna er 43 ára. Tinna segir að það séu engar reglur í tískunni.Aðsend Kolbrún Pálína Helgadóttir Kolbrún Pálína er 44 ára, sérfræðingur í miðlun og markaðsmálum hjá Ósum og er þekkt fyrir að heilla fólk upp úr skónum með persónutöfrum sínum. Hún er ekki aðeins falleg og eldkár heldur leggur hún mikla áherslu á heilsusamlegan lífsstíl. Kolbrún stundar reglulega fjallgöngur og jóga, og er mikið náttúrubarn sem elskar ferðalög. Kolbrún Pálína vinnur að þáttum að skilnaði ásamt Kristborgu Bóel.fréttablaðið/vilhelm Helena Hafþórsdóttir O’Connor Hin tvítuga Helena hlaut titilinn Miss Supranational 2023 í Ungfrú Ísland og komst í topp 20 í Miss Supranational í Póllandi í sumar. Hún starfaði sem fyrirsæta erlendis í sumar, en hefur nú snúið aftur í skóla til að læra sálfræði.
Ástin og lífið Mest lesið Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið Sigrún Ósk mætt á RÚV Lífið Pétur og Birgitta nýtt par Lífið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Lífið Hvað veistu um... gönguleiðir? Lífið TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Lífið Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Lífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Lífið „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Lífið Fleiri fréttir Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Lést eftir mislukkaða typpastækkun í Taílandi „Brúðkaup aldarinnar“ hjá Önnu Fríðu og Sverri Stjörnulífið: Undir hárlengingum og bótoxi leynist íslenskur karlmaður Sjá meira