Útlit fyrir áframhaldandi rólegheit Atli Ísleifsson skrifar 23. september 2024 07:09 Spáð er að hiti verði á bilinu þrjú til tíu stig að deginum. Vísir/Vilhelm Útlit er fyrir áframhaldandi rólegheit í veðrinu í dag þar sem spáð er hægviðri og léttskýjuðu víða um land. Þó má gera ráð fyrir skýjuðu veðri og að líkur séu á smá súld af og til við suðurströndina.
Á vef Veðurstofunnar segir að hiti verði á bilinu þrjú til tíu stig að deginum. „Á morgun, þriðjudag er búist við vaxandi norðanátt, kalda eða stinningskalda seinnipartinn með lítilsháttar slyddu eða snjókomu á Norður- og Austurlandi. Kólnandi veður. Hægari vindur á miðvikudag og dálítil él norðaustantil, en bjart sunnan og vestanlands,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag: Vaxandi norðanátt, 8-15 m/s síðdegis. Dálítil rigning og síðar slydda eða snjókoma á Norður- og Austurlandi, annars þurrt. Hiti 0 til 10 stig, mildast syðst. Á miðvikudag: Minnkandi norðanátt og dálítil él norðaustantil, en léttskýjað sunnan heiða. Hiti frá frostmarki í innsveitum fyrir norðan, upp í 8 stig við suðurströndina að deginum. Á fimmtudag: Norðvestlæg átt og stöku skúrir eða slydduél norðan- og austanlands, en þurrt og bjart að mestu sunnantil. Hiti 1 til 8 stig, mildast á Suður- og Vesturlandi. Á föstudag: Vestlæg átt, skýjað og víða rigning á köflum, en slydda af og til um landið norðaustanvert. Hiti 1 til 6 stig. Á laugardag: Austlæg átt og dálítil væta suðaustantil, annars yfirleitt þurrt. Hiti um frostmark fyrir norðan og austan en 2 til 6 stiga hiti sunnan- og vestanlands. Á sunnudag: Útlit fyrir norðaustlæga átt. Úrkoma, einkum um landið suðaustanvert og fremur svalt.
Veður Mest lesið Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu Erlent Gagnrýnin byggð á misskilningi Innlent McConnell birtir mynd af sér á spítala Erlent Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Innlent Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Innlent Fleiri fréttir Væta vestantil en hlýjast fyrir austan Gular viðvaranir og allt að tuttugu og sjö stig Gular veðurviðvaranir í kortunum Bjart og allt að tuttugu og fimm stig á Austurlandi Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Dregur úr vætu síðdegis og hiti að átján stigum Hitatölurnar hækka fyrir austan Varhugaverðar hviður á Suðurlandi Víða allhvass vindur og úrkomubakki nálgast Spá sautján stiga hita á höfuðborgarsvæðinu Allt að sautján stiga hiti Bjart og hlýtt sunnan heiða Siggi stormur spáir góðu veðri um allt land Hlýjast fyrir austan Kaldi eða strekkingur á suðvestan- og vestanverðu landinu Væta með stífri norðaustanátt Stíf norðanátt með rigningu víða um land Allvíða skúrir og lægð nálgast Víða rigning en hiti að átján stigum Úrkoma í flestum landshlutum í dag Úrkoma víða og hiti að sextán stigum Víða skúraleiðingar og hiti að fimmtán stigum Sextán stig en líkur á síðdegisskúrum Bjartviðri suðvestanlands en líkur á skúrum Allhvasst suðaustantil og sums staðar rigning Viðrar vel til hátíðarhalda á höfuðborgarsvæðinu Hiti að átján stigum norðan og vestantil Austlæg átt og víða líkur á vætu 250 skjálftar en enginn gosórói að svo stöddu Áfram rólegheitaveður en líkur á síðdegisskúrum Sjá meira