Sviku út tugir milljóna með því að þykjast vera Brad Pitt Lovísa Arnardóttir skrifar 23. september 2024 21:55 Konurnar héldu að þær ættu í ástarsambandi við leikarann Brad Pitt og millifærðu milljónir. Vísir/EPA Fimm hafa verið handteknir á Spáni fyrir að svíkja út úr tveimur konum 325 þúsund evrur með því að þykjast vera leikarinn Brad Pitt. Það samsvarar tæpum 50 milljónum íslenskra króna. Konurnar héldu báðar að þær ættu í ástarsambandi við Brad Pitt.
Lögreglan á Spáni er búin að vera með málið í rannsókn frá því í fyrra og hefur kallað aðgerðina Bralina. Rannsóknin náði til fjölmargra héraða á Spáni.Eftir síðustu handtökur segir í frétt El Mundo að lögreglan sé nú búin að uppræta glæpahringinn sem skipulagði þjófnaðinn. Meðlimir glæpahópsins eiga yfir höfði sér ákæru fyrir fjársvik, peningaþvætti, skjalafals og aðild að skipulagðri glæpastarfsemi. Notuðu ákveðna frasa Á vef spænska miðilsins El Mundo kom fram í dag að auk þeirra fimm sem voru handtekin hafi tíu aðrir verið til rannsóknar vegna þjófnaðarins. Í tengslum við rannsóknina fór fram húsleit í fimm húsum auk þess sem lögregla lagði hald á farsíma, bankakort, tölvur og ýmis skjöl. Meðal skjalanna sem voru haldlögð voru dagbækur þar sem mátti finna ýmsa frasa sem svikahrapparnir notuðu á konurnar til að blekkja þær. „Ást mín til þín er sönn. Tilfinningarnar koma frá hjarta mínu,“ segir í dagbókinni auk ýmissa annarra ástarjátninga og yfirlýsinga. Í frétt El Mundo segir að lögreglan hafi hafið rannsókn sína eftir að kona í Granada á Spáni tilkynnti til lögreglu að hún hefði verið svikin um 175 þúsund evrur. Sú rannsókn leiddi svo til annars fórnarlambs i Vizcaya héraði. Þar kemur einnig fram að glæpamennirnir hafi haft samband við fórnarlömbin í gegnum aðdáendasíðu sem tileinkuð var Brad Pitt. Konurnar voru látnar halda að þær hafi verið í sambandi með leikaranum. Konur í viðkvæmri stöðu Eftir að svikarinn hafi stofnað til sambands með konunum, í nafni Brad Pitt, lagði hann svo til að þær myndu styrkja ýmis verkefni sem hann væri með í gangi. Þannig tókst honum að svíkja 175 þúsund af konunni í Granada, sem samsvarar um 26 milljónum íslenskra króna, og 150 þúsund evrur af konunni í Biscay. Það samsvarar um 22 milljónum íslenskra króna. Svikahrapparnir lögðu áherslu á að finna konur sem væru í viðkvæmri stöðu annað hvort tilfinningalega eða konur sem ættu við andleg vandamál að stríða. Eftir að svikahrapparnir höfðu skipts á skilaboðum við konurnar, og talið þær trú um að þær ættu nú í sambandi við Brad Pitt, voru þær fengnar til að millifæra. Þá kemur einnig fram að lögreglan hafi komist að því að glæpahópurinn hafi þvegið peningana með því að stofna bankareikninga á nafni afrískra ríkisborgara.
Spánn Lögreglumál Mest lesið Ein kært nauðgun og fjórar segjast hafa verið beittar ofbeldi Innlent Gekk nakinn í veg fyrir bíla á Suðurlandsvegi Innlent Gummi Emil feginn að ekki fór verr eftir misheppnaðan sveppatúr Innlent Efna til söfnunar fyrir móður Kolfinnu Eldeyjar Innlent Verið að fara fram á rannsókn, ekki þöggun Innlent Fannst 73 árum eftir að hafa verið rænt Erlent Manndráp í Kiðjabergi komið til saksóknara Innlent Rússar gerðir afturreka með óvæntar tillögur á allsherjarþingi SÞ Erlent Ringulreið á lánamarkaði Innlent Ánægður með frumvarp sjálfstæðismanna Innlent Fleiri fréttir Sviku út tugi milljóna með því að þykjast vera Brad Pitt Risavaxin mörgæs slær í gegn Um 500 látin í árásum Ísraela á Líbanon Ætlaði sér að ráða Trump af dögum Fólk flýr Beirút undan mannskæðum árásum Ísraela Selenskíj heimsótti lykilríki og þakkaði fyrir vopnin Flúði þegar sveitir Maduro ætluðu að grípa hann Fimmtán á sjúkrahús eftir lestarslys í Svíþjóð Starfsmenn flýja framboð Robinson eftir „svartur nasisti“-hneykslið Fjórir myrtir og fjöldi særður eftir skotárás í Alabama Ísraelar ráðast í umfangsmiklar loftárásir og hvetja íbúa til að flýja Rússar gerðir afturreka með óvæntar tillögur á allsherjarþingi SÞ Jafnaðarmenn báru nauman sigur úr býtum Trump útilokar að bjóða sig fram aftur Marxisti kjörinn forseti Srí Lanka Segir að Hezbollah muni skilja skilaboðin Fimmtíu og einn látinn eftir sprengingu í námu Fannst 73 árum eftir að hafa verið rænt Jörðin fær tímabundið annað tungl Varpa sprengjum á fjölbýlishús í Karkív Tjóðraði móður sína við stól til að drepa eiginmann sinn Skiptast á eldflaugum í massavís Konur og börn meðal látinna þegar Hezbollah-leiðtoga var ráðinn bani Ríkisstjórn mynduð í Frakklandi Skorar á Trump í aðrar kappræður Diddy á sjálfsvígsvakt Senda svifsprengjur fyrir F-16 Repúblikanar áhyggjufullir vegna „svarta nasistans“ Óþekkt tónverk eftir Mozart fannst Fjölmiðlafólki vísað úr salnum við myndbirtingu: „Þetta er ósæmilegt og átakanlegt myndefni“ Sjá meira