Innlent

Skerða orku til stórnotenda

Samúel Karl Ólason skrifar
Forsvarsmenn Landsvirkjunar segja að ekki þyrfti að skerða orku til stórnotenda á suðvesturhorninu ef flutningskerfið væri betra og benda á yfirflæði úr Hálslóni.
Forsvarsmenn Landsvirkjunar segja að ekki þyrfti að skerða orku til stórnotenda á suðvesturhorninu ef flutningskerfið væri betra og benda á yfirflæði úr Hálslóni. Vísir/Vilhelm

Orka verður skert til stórnotenda á suðvesturhluta landsins. Skerðingarnar eiga að hefjast þann 24. október, nema eitthvað breytist, og eru þær tilkomnar vegna slæmrar stöðu miðlunarlóna á Þjórsársvæðinu.

Í tilkynningu frá Landsvirkjun segir að forgangsorka verði ekki skert, heldur sé verið að skerða orku sem búið sé að semja við viðskiptavini um að megi skerða þegar staða miðlunarlóna sé lág. Staðið verði við alla samninga um afhendingu forgangsorku til stórnotenda og heildsölu.

Þar segir einnig að staðan hafi verið svipuð á undanförnum árum og þó vætusamt hafi verið á láglendi í sumar, hafi staðan verið önnur á hálendinu. Þar hafi verið þurrt og kalt og þá sérstaklega í júní og ágúst, svo jöklar hafi lítið bráðnað.

Verði haustið úrkomusamt gæti staðan skánað og enn er óljóst hver þróunin verði á næstu vikum. Grunnvatnsstaða Tungnaár er sögð í sögulegu lágmarki og mun það hafa áhrif á rennsli árinnar á komandi vetri.

Í áðurnefndri tilkynningu segir einnig að ekki hefði þurft að koma til þessarar skerðingar ef flutningskerfið gerði Landsvirkjun kleift að færa nægilega orku milli landshluta. Hálslón við Kárahnjúka sé til dæmis á yfirfalli. Þá hefði líklega ekki þurft að skerða orkuna ef vindorkuverið við Vaðöldu væri komið í gang. Vonast sé til að svo verði undir árslok árið 2026.

„Forgangsröðun Landsvirkjunar er sú að megináhersla er lögð á að anna eftirspurn eftir raforku til aukinnar almennrar notkunar í samfélaginu og til innlendra orkuskipta, til að styðja við aukna stafræna vegferð og nýsköpun og til að styðja við framþróun núverandi stórnotenda. Landsvirkjun hefur dregið úr sölu til gagnavera um 50% til þess að fasa út rafmyntir og gert samning við fjarvarmaveitur um forgangsorku sem kemur í veg fyrir olíunotkun á skerðingatímabilinu,“ segir í tilkynningunni.


Tengdar fréttir

Vinna málið saman og nýta greinar­gerð vegna fyrri um­sóknar

Oddvitar Rangárþings ytra og Skeiða- og Gnúpverjahrepps eiga von á því að geta unnið umsókn Landsvirkjunar um framkvæmdaleyfi fyrir Hvammsvirkjun í Þjórsá fljótt og örugglega. Stefnt er að því að sveitarfélögin afgreiði umsóknina á sama tíma. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×