Haukur frábær í öruggum sigri Búkarest Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 26. september 2024 18:32 Haukur Þrastarson átti frábæran leik. Andrzej Iwanczuk/Getty Images Haukur Þrastarson var upp á sitt besta í öruggum sigri Dinamo Búkarest á Pelister í Meistaradeild Evrópu karla í handbolta. Lærisveinar Guðmundar Guðmundssonar í Fredericia máttu þá þola tap á heimavelli gegn Füchse Berlín.
Haukur hefur leikið vel með Búkarest það sem af er tímabili og þar var engin breyting á þegar liðið mætti til leiks í kvöld. Heimamenn tóku völdin snemma leiks og voru alltaf skrefi á undan. Undir lok fyrri hálfleiks bættu þeir í og voru sex mörkum yfir í hálfleik. Það verður seint sagt að gestirnir hafi átt mikið í heimaliðið í síðari hálfleik og lauk leiknum með níu marka sigri Búkarest, lokatölur 34-25. Haukur skoraði fjögur mörk og gaf fjórar stoðsendingar. Aðeins Ali Ismail Mohamed kom að jafn mörgum mörkum í liði Búkarest en hann skoraði fimm og gaf þrjár stoðsendingar. Miklos Rosta var þó markahæstur með sjö mörk. Búkarest hefur nú jafnað Sporting að stigum á toppi A-riðils en bæði lið eru með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir. Fredericia tapaði með sex marka mun gegn Füchse Berlín, lokatölur 32-38. Einar Þorsteinn Ólafsson skoraði þrjú mörk í liði heimamanna og Arnór Viðarsson bætti við einu marki. Lærisveinar Guðmundar eru á botni riðilsins án stiga. Þá skoraði Janus Daði Smárason eitt mark þegar lið hans Pick Szeged vann dramatískan eins marks sigur á Nantes í B-riðlinum, lokatölur 33-32. Janus Daði og félagar eru nú í 2. sæti með fjögur stig að loknum þremur umferðum.
Handbolti Meistaradeild Evrópu í handbolta karla Mest lesið Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Börsungar léku sér að Aston Villa Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport PSG setti nýtt met í kvöld Fótbolti Fleiri fréttir Sigurganga Hauka heldur áfram Hvert sæti skipað í Laugardalshöll Teitur kallaður inn í landsliðið vegna meiðsla Einmana á botninum í hléinu Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Atli Steinn kláraði Stjörnuna Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik „Sóknarleikurinn vel smurður“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Sjá meira