Viðskipti innlent

Stofna fé­lag utan um Origo og þrettán önnur rekstrarfélög

Árni Sæberg skrifar
Ari Daníelsson er forstjóri Origo.
Ari Daníelsson er forstjóri Origo. Origo

Frá og með 1. nóvember mun Skyggnir eignarhaldsfélag taka til starfa og þar með flyst starfsemi Origo sem snýr að rekstrarþjónustu, innviðum og hugbúnaði í aðskilið dótturfélag, Origo ehf. Skyggnir mun fara með hluti í fjórtán rekstrarfélögum.

Í fréttatilkynningu þess efnis segir að tilgangur Origo verði sá sami og hingað til, að skapa betri tækni sem bætir lífið og hjálpa fyrirtækjum og stofnunum að ná betri árangri með tækninni.

Haft er eftir Ara Daníelssyni, forstjóra Origo, að breytingin muni skerpa á hlutverki Origo og efla þjónustu gagnvart viðskiptavinum. Ari verður áfram forstjóri Origo og Skyggni verður alfarið stýrt af þriggja manna stjórn sem skipuð er af eiganda félagsins, framtakssjóðnum Umbreyting II slhf. í rekstri Alfa framtaks. 

Engin eiginleg starfsemi verður innan Skyggnis heldur verður það aðeins eignarhaldsfélag.Skyggnir

Stjórnarmenn verða Gunnar Páll Tryggvason, Árni Jón Pálsson og Sigurður Valtýsson.

Betur skilgreint hlutverk

Síðan árið 2018 hafi vörumerki Origo gegnt tveimur hlutverkum. Annars vegar sem móðurfélag fjölda dótturfélaga og sem rekstrarfélag með fjölbreytt framboð á sviði upplýsingatækni.

Tilgangurinn með skipulagsbreytingunni sé að skilja að starfsemi eignarhaldsfélags og rekstrar. Annars vegar sé þetta gert til að skapa meiri áherslu á vöruþróun og afhendingu lausna og þjónustu hjá Origo. Hins vegar, til að skilgreina betur hlutverk eignarhaldsfélagsins gagnvart rekstrarfélögum þess, samstarfsaðilum og fjárfestum.

Tímamót hjá Origo

„Þessi breyting eru tímamót hjá Origo og öllum rekstrarfélögum í eigu Skyggnis. Með nýju skipulagi náum við að skerpa betur á hlutverki Origo og hafa rekstur og þjónustu þar í forgrunni. Við einsetjum okkur að vera traustur samstarfsaðili fyrirtækja og stofnana og að skapa framúrskarandi tæknilausnir sem hjálpa viðskiptavinum okkar að ná árangri,“ er haft eftir Ara.

Loks er haft eftir honum að Skyggnir fari með eignarhluti í fjórtán rekstrarfélögum á sviði upplýsingatækni og hafi það hlutverk að koma auga á tækifæri og styðja fyrirtæki í eignasafni sínu til árangurs. 

Skyggnir mun fara með eignarhluti í fjórtán fyrirtækjum.Skyggnir

Sjálfstæð rekstrarfélög í eigu Skyggnis, þar sem Origo ehf. sé stærst, einbeiti sér þannig að viðskiptavinum sínum, vörum og rekstri.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×