Haukar og Valur byrja Bónus deildina á sigrum Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 1. október 2024 22:31 Lore Devos er mætt í Hauka og byrjar með látum. Vísir/Diego Haukar og Valur unnu bæði sína leiki í 1. umferð Bónus deildar kvenna í körfubolta. Valur vann Þór Akureyri með fimm stiga mun, 82-77. Haukar lögðu Hamar/Þór með níu stiga mun, 93-84.
Á Hlíðarenda var fyrsti leikhluti gríðarlega jafn og spennandi en í öðrum leikhluta voru gestirnir frá Akureyri mun sterkari. Þeir héldu hins vegar ekki út og skoruðu aðeins sjö stig í fjórða leikhluta á meðan Valur setti niður 19 stig og tryggði sér sigurinn, lokatölur 82-77. Alyssa Marie Cerino var frábær í liði Vals með 34 stig, fimm fráköst og þrjár stoðsendingar. Þar á eftir kom Dagbjört Dögg Karlsdóttir með 19 stig, fjögur fráköst og fjórar stoðsendingar. Í liði Þórs Ak. var Esther Marjolein Fokke með 24 stig og sex fráköst. Madison Anne Sutton skoraði 12 stig og tók 11 fráköst. Í Ólafssal voru nýliðarnir frá Suðurlandi í heimsókn og stóðu þeir í heimaliðinu framan af leik. Aðeins munaði stigi á liðunum í hálfleik en í þeim síðari tókst Haukunum að skilja sig frá gestunum og vinna níu stiga sigur, 93-84. Lore Devos, sem gekk til liðs við Hauka í vor, átti ótrúlegan leik. Hún var með 41 stig ásamt því að taka 10 fráköst og gefa þrjár stoðsendingar. Tinna Guðrún Alexandersdóttir skoraði 16 stig og gaf fjórar stoðsendingar. Abby Claire Beeman skoraði 25 stig í liði gestanna, gaf 12 stoðsendingar og tók fjögur fráköst. Kristrún Ríkey Ólafsdóttir skoraði 14 stig og tók 15 fráköst.
Körfubolti Bónus-deild kvenna Haukar Valur Mest lesið „Þessi Kane er stórhættulegur“ Körfubolti Hefndi fyrir tap Hákonar og stóð uppi sem meistari Sport Hetjan mætti í vígahug í viðtal: „Algjört kjaftæði“ Enski boltinn Gamla Skyttan veitti City þungt högg Enski boltinn Skrýtin ára yfir Val: „Svo kemur þetta og þá ferðu svolítið að efast“ Körfubolti Tómas Bent þurfti að yfirgefa völlinn eftir þungt höfuðhögg Fótbolti Segir aðeins eina ástæðu fyrir því að Tudor er enn í starfi Enski boltinn Ítalinn ungi sótti sinn fyrsta sigur í Formúlu 1 Formúla 1 Sjáðu mörkin er KR valtaði yfir Stjörnuna og flaug áfram í úrslitaleikinn Íslenski boltinn Stórfurðulegt atvik fyrir leik Chelsea og dómarinn í aðalhlutverki Enski boltinn Fleiri fréttir Skrýtin ára yfir Val: „Svo kemur þetta og þá ferðu svolítið að efast“ „Þessi Kane er stórhættulegur“ ÍA 86-115 Tindastóll | Skagfirðingar ekki í vandræðum á Skaganum Stórleikur Elvars dugði ekki til sigurs Ræddu umtalaða sigurkörfu KR: „Þetta er rosalega heimskulegt“ Uppgjörið: Grindavík - Stjarnan 94-88 | Deildarmeistarar eftir magnaðan viðsnúning Fyrsta tapið á tímabilinu og Almar þarf nú að bíða og vona KR - Keflavík 107-105 | Keflvíkingar gáfu frá sér fimmta sætið „Hefðum unnið þá í framlengingunni í staðinn“ Uppgjörið:Njarðvík - Valur 110-78| Njarðvíkingar að kveikja á sér á hárréttum tíma Uppgjör: Álftanes - ÍR 89-93 | Álftanes að missa af en ÍR á leið í úrslitakeppnina Hákon: Þetta er svo ógeðslega gaman Þór Þ. - Ármann 74-79 | Ármenningar skildu Þórsara eftir í fallsæti Risa leikur í kvöld: „Einn af þeim stærri í sögu Þórs Þorlákshafnar“ Clark fór á kostum í fyrsta landsleiknum „Þetta er ógeðslegt starf“ Tryggvi með hæstu einkunn í flottum sigri Ævintýri Stólanna lauk á spennuleik Uppgjörið: Serbía - Ísland 92-66 | Stelpurnar okkar svæfðar í Serbíu Nablinn vill ræða við mannauðsstjórann hjá Sýn um þessa vitleysu Bam skoraði 83 stig í NBA í nótt Allt undir þegar peningakarlinn mætir með Shabazz á Krókinn Kristrún Ríkey í óvænt flug til Serbíu NBA bannar Atlanta Hawks að kynna strippstað Slógu í gegn með dansi áður en mars-geðveikin hefst „Bara besti leikurinn sem ég hef séð hjá Kristó í nokkur ár“ Tilþrif 19. umferðarinnar: Stjörnustrákar stukku hátt en Sigurður stal senunni „Þessi breyting hjá Keflavík var hálfgerð þvæla“ Langafi dæmdi hjá langafabarni sínu Jón Axel með lykilkörfu undir lokin í sigri á Tryggva Sjá meira