Júmbóþotan vinnuhesturinn sem byggði upp Air Atlanta Kristján Már Unnarsson skrifar 3. október 2024 21:31 Baldvin Már Hermannsson, forstjóri Air Atlanta, skömmu fyrir brottför í dag. Egill Aðalsteinsson Síðasta farþegaflug Air Atlanta á Boeing 747-júmbóþotunni var í dag og flaug vélin sérstakan kveðjuhring yfir Reykjavíkursvæðinu. Forstjóri Atlanta segir þessa flugvélartegund hafa byggt upp félagið.
Í fréttum Stöðvar 2 var rifjað upp þegar Atlanta fékk sína fyrstu júmbóþotu vorið 1993, en það þóttu stór tímamót. Stofnendur flugfélagsins, þau Arngrímur Jóhannsson og Þóra Guðmundsdóttir, tóku á móti fyrstu vélinni. Fyrsta Boeing 747-þota Air Atlanta, TF-ABK, kom til Keflavíkur vorið 1993. Hún hlaut nafnið Agnar Kofoed-HansenStöð 2/Billi En núna, rúmum þremur áratugum seinna, er komið að ákveðnum sögulokum. „Já, sannarlega. Við erum að kveðja núna fjörutíuogsjöuna eftir 31 og hálft ár í rekstri. Fjörutíuogsjöan er búin að vera okkar vinnuhestur allan þennan tíma. Og við erum búin að byggja upp reksturinn á grunni fjörutíuogsjöunnar. Já, þetta eru ákveðin tímamót að sjá á eftir vélinni enda synd, þetta er gullfalleg flugvél,“ segir Baldvin Már Hermannsson, forstjóri Air Atlanta. Síðasta 747-farþegaþota Air Atlanta við Leifsstöð í dag.KMU Vegna tímamótanna var starfsmönnum ásamt mökum boðið í kveðjuferð til Marokkó og forstjórinn bauð sjálfur alla velkomna um borð. Áfangastaðurinn er borgin Casablanca. „Við ætlum að vera þar fram á sunnudag og fólkið er sannarlega búið að vinna fyrir þessu hörðum höndum. Þanng að þetta verður skemmtilegt,“ segir Baldvin. Og það er auðheyrt að flugmennirnir eiga eftir að sakna hennar. Róbert Kristmundsson, yfirflugstjóri Air Atlanta, og Þorsteinn Steindórsson flugmaður.KMU „Þetta er vélin sem ég er búinn að vera lengst á og þykir alveg gríðarlega vænt um hana. Þetta er glæsilegt tæki, eins og þið sjáið. Þetta er svona partur af manni,“ segir Róbert Kristmundsson, yfirflugstjóri Air Atlanta. Sem fraktþota mun hún þó lifa lengur í rekstri hjá félaginu þannig að flugmennirnir eiga eftir að fljúga tegundinni áfram. „Hún er þýð og góð í flugi og fer vel með mann. En maður verður nú líka einhvern tímann að taka á móti nýja tímanum hjá félaginu. Ætli það verði ekki nokkur ár í viðbót,“ segir Þorsteinn Steindórsson, flugmaður í ferðinni. Flugtakið frá Keflavíkurflugvelli í dag.Egill Aðalsteinsson „Við erum ennþá með fjölmargar 747-fraktvélar og þær munu næstu 6-8 árin halda áfram að þjóna okkur,“ segir forstjórinn. Þau flugfélög heims, sem enn nýta hana til farþegaflugs, eru orðin teljandi á fingrum annarrar handar. Þetta verður því að öllum líkindum í síðasta sinn sem við sjáum drottningu háloftanna halda frá Leifsstöð með farþega. Um 240 manns voru um borð í þessari 465 sæta flugvél, sem er í uppáhaldi hjá flugþjóninum Einari Sebastian Ólafssyni. Einar Sebastian Ólafsson, yfirflugþjónn hjá Air Atlanta.Egill Aðalsteinsson „Þetta er náttúrlega bara vélin, vél vélanna, finnst mér. Þannig að það verður mjög leiðinlegt þegar hún fer. Það eru margir sem gráta í dag hér í fyrirtækinu. En líka, þetta er partí. Það er gaman, þetta er svona starfsmannaflug,“ segir Einar. „Fyrir mér er bara ein drottning himnanna. Það er 747-vélin. Það er ekkert flóknara en það,“ segir forstjórinn Baldvin Már. Hér má sjá frétt Stöðvar 2:
Air Atlanta Boeing Keflavíkurflugvöllur Fréttir af flugi Marokkó Flugþjóðin Tengdar fréttir Risaþota flaug í lágflugi yfir Reykjavík Síðasta farþegaflug Air Atlanta á Boeing 747 verður um klukkan tvö í dag. Flogið verður í lágflugi yfir Reykjavík í tilefni dagsins og þaðan í sérstakt kveðjuflug með starfsmenn félagsins til Casablanca í Marokkó í Norður-Afríku. 3. október 2024 13:31 Veikindi flugstjóra settu óvænt strik í flugáætlun Atlanta-þotu Áhöfn Boeing 747-þotu Air Atlanta, TF-AMI, flaug með hátt í eitthundrað tonn af lyfjum frá Evrópu til Suður-Afríku. Eftir lendingu í Jóhannesarborg þurfti starfsfólk félagsins í skyndi að bregðast við óvæntum veikindum flugstjóra. 3. október 2024 10:48 Flugfreyjan frestaði íbúðakaupum og fórnaði sparnaðinum í flugnám Hún var orðin flugfreyja, sá svo að hún gæti allt eins orðið flugmaður og fórnaði húsnæðissparnaðinum í flugnám. Núna stýrir hún stærstu þotum íslenska flugflotans. 30. september 2024 22:11 Mest lesið Lögmaður eiginkonunnar fyrrverandi segir lögreglu ljúga Innlent Arftaki Nasrallah sagður drepinn í árás Ísraela Erlent Vísar orðum Jóns um nýja Ölfusárbrú á bug Innlent Kynferðisleg svefnröskun hélt ekki vatni Innlent Hér sést risaþotan taka á loft frá Keflavíkurflugvelli Innlent Féll af steini við Seljalandsfoss Innlent Vita um tvo Íslendinga í Líbanon Erlent Þrír í haldi í fíkniefnamáli Innlent Minnast Bryndísar Klöru með tónleikum: „Fallegt hvað allir stóðu saman“ Innlent Keyrt á tvo unga drengi Innlent Fleiri fréttir Lögmaður eiginkonunnar fyrrverandi segir lögreglu ljúga Vísar orðum Jóns um nýja Ölfusárbrú á bug Þrír í haldi í fíkniefnamáli Hér sést risaþotan taka á loft frá Keflavíkurflugvelli Keyrt á tvo unga drengi Minnast Bryndísar Klöru með tónleikum: „Fallegt hvað allir stóðu saman“ Kynferðisleg svefnröskun hélt ekki vatni Féll af steini við Seljalandsfoss Heilsugæslan til rannsóknar og síðasta farþegaflug júmbóþotu Kaldasti september frá árinu 2005 Hefja frumkvæðisathugun á Heilsugæslunni Segir nákvæmlega ekkert að óttast við atkvæðagreiðsluna Ótrúverðugar skýringar í nauðgunarmáli Alelda bíll á Reykjanesbraut Leita tveggja vegna banaslyssins á Sæbraut Risaþota flaug í lágflugi yfir Reykjavík Áfram á bak við lás og slá vegna andláts hjónanna Umferðarljósin rafmagnslaus vegna rafmagnstruflana Þóra Jóhanna nýr yfirdýralæknir Stóra sánumálið: „Örugglega ýmislegt viðgengist sem myndi ekki viðgangast í öðrum klefum“ Sögðu upp fleiri samningum í kjölfar úrskurðarins Ánægð með að stjórnvöld viðurkenni mönnunarvandann Vaxtalækkun, nýr kjarasamningur og lokað á sjúkraskrár Rafmagnsleysi sums staðar fram á kvöld Herbergi fylltist af vatni upp að hurðarhúni Veikindi flugstjóra settu óvænt strik í flugáætlun Atlanta-þotu Kona tveggja flokka í Samtalinu Ekið á ungan dreng á hlaupahjóli Meiri stuðningur við Borgarlínu í Reykjavík en annars staðar Heilsugæslan lokar fyrir aðgengi Samgöngustofu að sjúkraskrám Sjá meira
Risaþota flaug í lágflugi yfir Reykjavík Síðasta farþegaflug Air Atlanta á Boeing 747 verður um klukkan tvö í dag. Flogið verður í lágflugi yfir Reykjavík í tilefni dagsins og þaðan í sérstakt kveðjuflug með starfsmenn félagsins til Casablanca í Marokkó í Norður-Afríku. 3. október 2024 13:31
Veikindi flugstjóra settu óvænt strik í flugáætlun Atlanta-þotu Áhöfn Boeing 747-þotu Air Atlanta, TF-AMI, flaug með hátt í eitthundrað tonn af lyfjum frá Evrópu til Suður-Afríku. Eftir lendingu í Jóhannesarborg þurfti starfsfólk félagsins í skyndi að bregðast við óvæntum veikindum flugstjóra. 3. október 2024 10:48
Flugfreyjan frestaði íbúðakaupum og fórnaði sparnaðinum í flugnám Hún var orðin flugfreyja, sá svo að hún gæti allt eins orðið flugmaður og fórnaði húsnæðissparnaðinum í flugnám. Núna stýrir hún stærstu þotum íslenska flugflotans. 30. september 2024 22:11