Lífið

Malín Agla og Svavar eiga von á öðru barni

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Malín Agla og Svavar
Malín Agla og Svavar Skjáskot

Dansarinn Malín Agla Kristjánsdóttir og Svavar Ingvarsson einkaþjálfari eiga von á sínu öðru barni saman. 

Malín greinir frá gleðitíðindunum á Instagram. Fyrir eiga þau eina stúlku, Sigurrósu sem er fjögurra ára.

„Sigurrós ætlar loksins að verða stóra systir,“ skrifar Malín und­ir mynd af dóttur þeirra þar sem hún held­ur á són­ar­mynd.

Malín og Svavar giftu sig þann 13. júní á þessu ár og trúlofuðu sig þann 23. júlí 2023. 

Allir geta dansað

Malín tók þátt í dansþáttunum Allir geta dansað á Stöð 2 árið 2019, þar sem hún var fengin til að dansa og þjálfa Jón Viðar Arnþórsson bardagakappa.

Árið 2016 lagði Malín keppnisskóna á hilluna eftir sextán ára dansferil eftir að hún varð fyrir alvarlegum meiðslum þegar hún lenti í skíðaslysi í Noregi. Aðeins fimm mánuðum áður hafði hún sagt í viðtali við Lífið á Vísi að markmið sitt væri að verða heimsmeistari einn daginn en þá var hún númer níu á heimslistanum. Örlögin tóku þó í taumana.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×