KA og ÍR fögnuðu eftir spennu Sindri Sverrisson skrifar 17. október 2024 21:47 Dagur Árni Heimisson var markahæstur hjá KA með heil þrettán mörk í kvöld. S2 Sport ÍR-ingar gerðu sér lítið fyrir og lögðu Fram að velli í Breiðholti í kvöld, 35-34, eftir spennuleik í Olís-deild karla í handbolta. KA-menn unnu HK-inga með sömu tölum á Akureyri og hafa því líkt og ÍR-ingar unnið tvo leiki af sjö.
Dagur Árni Heimisson skoraði þrettán mörk og Bjarni Ófeigur Valdimarsson tíu fyrir KA í kvöld, í kærkomnum sigri. KA-menn höfðu frumkvæðið nánast allan leikinn en HK var ekki langt undan og tókst að minnka muninn í eitt mark þegar hálf mínúta var eftir. Dagur Árni skoraði hins vegar úr næstu sókn KA og innsiglaði sigurinn, þó svo að HK næði að skora síðasta mark leiksins. Sigurður Jefferson Guarino og Andri Þór Helgason voru markahæstir hjá HK með átta mörk hvor. ÍR-ingar voru komnir fjórum mörkum yfir gegn Fram þegar tvær mínútur voru eftir en engu að síður tókst Frömurum að hleypa spennu í leikinn í lokin, og minnka muninn í eitt mark þegar enn voru sextán sekúndur eftir. Það dugði þó ekki til og ÍR varð því þriðja liðið til að vinna Fram á leiktíðinni, en Framarar sitja áfram í 3. sæti með átta stig. Róbert Snær Örvarsson var markahæstur hjá ÍR með tíu mörk og Hrannar Ingi Jóhannsson kom næstur með fimm. Hjá Fram var Rúnar Kárason markahæstur með átta mörk og Eiður Rafn Valsson skoraði sex. ÍR er nú með fimm stig og KA fjögur, en HK er neðst með þrjú stig.
Olís-deild karla Mest lesið Segja starf Elísabetar hanga á bláþræði en leikmenn lofa hana Fótbolti Einkunnir Íslands: Þrjár stóðu upp úr í veislunni í Dalnum Fótbolti Rúnar Páll tekur við Stjörnunni á nýjan leik Íslenski boltinn Benedikt birtir mynd frá slysstað Handbolti Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ Handbolti Gáfu ekki upp hundraða milljóna greiðslu til Infantino Fótbolti FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Handbolti „Mættum til leiks í seinni hálfleik“ Sport Norsku meistararnir magnaðir gegn Bayern Fótbolti Sungu jólalag hástöfum og allt klárt fyrir HM-einvígin Fótbolti Fleiri fréttir Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum Sjá meira