Innlent

Grunaður um að nauðga og brjóta í­trekað á barn­ungri stúlku

Jón Þór Stefánsson skrifar
Málið verður tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur.
Málið verður tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur. Vísir/Vilhelm

Karlmaður hefur verið ákærður fyrir nauðgun og kynferðisbrot gegn barni. Honum er gefið að sök að hafa brotið á stúlku í fjölda skipta haft samræði og önnur kynferðismök við stúlkuna.

Í ákærunni sem fréttastofa hefur undir höndum hafa einhverjar upplýsingar verið teknar út. Til að mynda liggur ekki fyrir hvernig maðurinn og stúlkan tengjast. Hann er ekki ákærður fyrir brot í nánu sambandi, en í ákærunni segir að hann hafi notfært sér yfirburði sína gagnvart stúlkunni vegna trausts hennar og trúnað til hans.

Meint brot eru sögð hafa verið framin á heimili stúlkunnar og á heimili hans.

Ekki kemur fram hvenær umrædd brot voru framin, en svo virðist sem brotin hafi verið framin á einhverju tímabili, en ekki liggur fyrir hversu langt það tímabil er. Þó virðist sem um margra mánaða skeið sé að ræða, jafnvel nokkurra ára. Jafnframt kemur ekki fram hversu gömul stúlkan var á þessu tímabili.

Manninum er gefið að sök að hafa í fjölda skipta sett fingur í leggöng stúlkunnar.

Þá eru þrjú atvik reifuð sérstaklega í ákærunni, en öll þau brot eru sögð hafa átt sér stað í herbergi hans í heimili hans. Í fyrsta lagi er maðurinn sagður hafa sett fingur í leggöng stúlkunnar, síðan getnaðarlim sinn. Þar á eftir er hann sagður hafa „haft lim sinn um stund á milli læra stúlkunnar og nuddað sér upp við hana.“

Í öðru lagi er hann sagður hafa haft samræði við hana. Og í þriðja lagi sett fingur í leggöng hennar og svo haft samræði við hana.

Það er héraðssaksóknari sem höfðar málið, en þess er krafist að maðurinn verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar.

Fyrir hönd stúlkunnar er þess krafist að maðurinn greiði henni fjórar milljónir króna í miskabætur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×