Bætir smám saman í vind Atli Ísleifsson skrifar 8. nóvember 2024 07:14 Hiti verður á bilinu eitt til tíu stig, hlýjast syðra. Vísir/Vilhelm Dálítill hæðarhryggur er nú yfir landinu og eru vindar því hægir og úrkoma lítil. Suður og suðaustur af Hvarfi er þó alldjúpt lægðasvæði, sem nálgast og bætir því smám saman í vind.
Á vef Veðurstofunnar segir að það verði suðaustankaldi eða -strekkingur og dálitlar skúrir eða slydduél sunnan- og vestanlands seinna í dag, en annars hægara og yfirleitt léttskskýjað. Hiti verður á bilinu eitt til tíu stig, hlýjast syðra. Á vefnum segir að gera megi ráð fyrir vatnavöxtum í ám og lækjum sem renna niður gil, sérstaklega þar sem enn sé snjór til fjalla. Ekki sé hægt að útiloka grjóthrun og yfirborðshreyfingar í bröttum hlíðum þar sem jarðvegur sé víða vatnsmettaður. „Bætir enn í vind í nótt og fer þá að rigna sunnan- og vestantil, allhvasst eða hvasst við suðurströndina í fyrramálið, en dregur heldur úr vindi seinnipartinn og hlýnar í veðri. Á sunnudag kemur ný lægð úr suðri og gengur norður með austurströndinni. Snýst þá í allhvassa vestanátt með rigningu, en slyddu eða snjókomu til fjalla og kólnar heldur. Úrkomulítið verður þó á norðausturhluta landsins,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Suðaustlæg átt, 8-15 m/s, hvassast syðast og rigning með köflum, en úrkomulítið fyrir norðan. Hiti víða 5 til 12 stig, hlýjast sunnantil. Á sunnudag: Suðaustlæg átt, 8-13 m/s, en snýst í vestan 10-18 síðdegis, hvassast syðst. Víða rigning og slydda eða snjókoma til fjalla fyrir norðan, en þurrt að kalla eystra. Hiti 2 til 7 stig. Á mánudag: Suðlæg átt, 8-15 m/s og rigning, en bjart með köflum á Morður- og Austurlandi. Hlýnar í veðri. Á þriðjudag: Stíf sunnanátt með rigningu eða súld, en bjartviðri norðaustanlands og hlýtt í veðri. Á miðvikudag: Vestlæg átt og dálitlar skúrir eða slydduél og kólnar í veðri. Á fimmtudag: Útlit fyrir stífa suðvestanátt með úrkomu og svölu veðri, en þurrt að kalla fyrir austan.
Veður Mest lesið Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Erlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Veður Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Innlent Fleiri fréttir Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Sjá meira