Lífið

Hlustar á Taylor Swift og elskar The Kardashians

Stefán Árni Pálsson skrifar
Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar í Pallborðinu á Vísi á dögunum.
Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar í Pallborðinu á Vísi á dögunum. vísir/anton brink

Hún elskar Taylor Swift, horfir á The Kardashians og langar að verða forsætisráðherra. Sindri kíkti í morgunkaffi hjá Kristrúnu Frostadóttur í Íslandi í dag í vikunni.

Kristrún stendur í ströngu um þessar mundir í kosningabaráttu fyrir alþingiskosningarnar 30. nóvember en hún er formaður Samfylkingarinnar.

„Ég myndi helst vilja að næsta ríkisstjórn verði skipuð flokkum sem eru ekki á sitthvorum pólnum. Sem eru ekki á sitthvorum skoðunum og þá bara situr allt fast. Það er fullt af hlutum sem almenningur á Íslandi getur sameinast um, það er bara þannig,“ segir Kristrún og heldur áfram.

„Það er rosalega vinsælt að keyra á einhverjum klofningsleiðum, landsbyggðin gegn höfuðborginni, aldur, alþjóða eða innanlandsmál og svo erum við einhvern veginn að dæma hvort annað fyrir skoðanir okkar í staðinn fyrir að vera ógeðslega stolt af því að búa á Íslandi og viljum við ekki bara öll að það gangi ógeðslega vel. Næsta ríkisstjórn þarf að vera með flokkum sem eru nokkuð nálægt hvor öðrum,“ segir Kristrún.

En hvernig slekkur Kristrún á heilanum?

„Ég hlusta mikið á létt popp og hlusta mjög mikið á Taylor Swift í dag. Ég skammast mín ekki fyrir neitt og horfi á The Kardashians og finnst það ógeðslega skemmtilegt. Khloé er mín uppáhalds, hún er ógeðslega skemmtileg.“

Hér að neðan má sjá innslagið í heild sinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×