Enski boltinn

Arteta svekktur eftir jafn­tefli á Brúnni: „Snýst um að vinna“

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Mikel Arteta, þjálfari Arsenal.
Mikel Arteta, þjálfari Arsenal. EPA-EFE/ADAM VAUGHAN

Mikel Arteta, þjálfari Arsenal í ensku úrvalsdeild karla í fótbolta, var ekki sáttur með að hans menn hafi aðeins náð í stig gegn Chelsea á Brúnni í stórleik helgarinnar.

Arsenal komst yfir í leiknum en Pedro Neto jafnaði metin með góðu skoti fyrir utan teig. Arteta var hins vegar allt annað en sáttur þegar hann ræddi við fjölmiðla eftir leik.

„Svekkelsið að ná ekki þremur stigum er meira og verður eflaust enn meira eftir að ég horfi aftur á leikinn. Mér fannst við vera með mikla yfirburði og vorum betra liðið í mörgum fösum leiksins. Eftir að við komumst yfir er ég mjög svekktur með hvernig við fengum á okkur markið. Það var svo slakt og eitthvað sem við getum ekki samþykkt.“

„Þetta kemur í kjölfarið á föstu leikatriði og við vorum ekki skipulagðir. Við vorum ekki nægilega fljótir að skila okkur í stöðu og þú getur ekki leyft sendingu eins og þessa. Þú þarft gæðin sem Neto sýndi en þetta var ekki nægilega gott af okkar hálfu,“ sagði Arteta um markið.

„Martin Ödegaard hefur verið meiddur í sex vikur og varla æft með liðinu. Að geta spilað á þessu getustigi í ensku úrvalsdeildinni segir allt um hversu vel hann sér um sig og hvaða karakter hann býr yfir,“ sagði Arteta um miðjumanninn en sá norski lagði upp mark Arsenal í leiknum.

„Allt flæðir betur með leikmenn eins og hann. Í dag smullum við mun betur saman og þú gast séð flæðið en aftur; þetta snýst um að vinna.“

„Á hverjum degi höfum við lent í því að þurfa breyta einhverju stóru. Höfum þurft að skipta um vél, skipta um dekk, skipta um stýri því við höfum lent í allskyns vandræðum. Venjulega gefast lið upp en þetta lið hefur sýnt ótrúlega orku og anda,“ sagði Arteta að endingu.

Arsenal er með 19 stig eftir 11 umferðir líkt og þrjú önnur lið í ensku úrvalsdeildinni. Manchester City er með 23 stig í 2. sæti og Liverpool trónir á toppnum með 28 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×