Englendingar komust á topp síns riðils í Þjóðadeildinni eftir 3-0 útisigur á Grikklandi í kvöld.
Grikkir unnu Englendinga á Wembley á dögunum en þeir ensku hefndu fyrir það tap í kvöld.
Það voru mikil forföll í enska landsliðinu í leiknum en það kom ekki að sök.
Ollie Watkins kom Englandi í 1-0 strax á sjöundu mínútu eftir stoðsendingu frá Noni Madueke.
Englendingar komust í 2-0 á 78. mínútu en markið er skráð sem sjálfsmark markvarðarins Odisseas Vlachodimos.
Jude Bellingham átti þá skot sem fór í stöngina og út en fór síðan af markverðinum og inn.
Curtis Jones hefur verið að gera góða hluti með Liverpool og hann skoraði þriðja markið á 83. mínútu eftir stoðsendingu frá Morgan Gibbs-White.
Góður sigur hjá enska landsliðinu og toppsæti riðilsins er þeirra.