Lífið

Annar bakaradrengur kominn í heiminn

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Gulli er einn vinsælasti bakari landsins.
Gulli er einn vinsælasti bakari landsins.

Gunn­laug­ur Arn­ar Inga­son, bak­ari og kondítor, bet­ur þekkt­ur sem Gulli bak­ari, og sambýliskona hans Kristel Þórðardótt­ir, eignuðust dreng þann 15. nóvember síðastliðinn. Fyr­ir eiga þau soninn Arn­ar Inga sem fæddist í apríl 2023. 

Parið greindi frá gleðitíðind­un­um í sameiginlegri færslu á In­sta­gram.

„Þessi litli snúður bættist í fjölskylduna 15.nóvember. Verður fljótt kominn á vaktina í bakaríinu með stóra bróður,“ skrifaði parið við mynd af litla snáðanum.

Gulli flutti til Kaupmannahafnar árið 2018 þar sem hann lærði kökugerð í Konditori La Glace. Á námsferlinum tók hann tvisar sinnum þátt í keppninni Kaka ársins þar sem um hundrað bakarar tóku þátt. Í báðum tilfellum hafnaði hann í einu af topp tíu sætum keppninnar.

Árið 2020 stofnaði Gulli bakaraíið, Gulli Arnar, ásamt æskuvini sínum Böðvari Böðvarssyni sem hefur notið gífurlegra vinsælda síðastliðin ár fyrir fjölbreytt úrval af bakarísmat og kökum undir skandínavískum áhrifum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×