Áfram köld og norðlæg átt Atli Ísleifsson skrifar 19. nóvember 2024 07:09 Frost á landinu verður yfirleitt á bilinu tvö til níu stig. Vísir/Vilhelm Hæð yfir Grænlandi og lægð við vesturströnd Noregs beina áfram til okkar kaldri norðlægri átt, víða átta til fimmtán metra á sekúndu, og éljum. Lengst af verður þurrt og bjart sunnantil á landinu.
Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar segir að á norðanverðu landinu séu élin nokkuð dimm með köflum og geti valdið versnandi akstursskilyrðum. Útlit er fyrir sleitulitla snjókomu á Austurlandi og Austfjörðum í kvöld og í nótt. Frost á landinu verður yfirleitt á bilinu tvö til níu stig. „Á morgun er litlar breytingar að sjá á austurhelmingi landins, norðan strekkingur eða allhvass vindur þar og áfram él, en yfirleitt þurrt á Suðausturlandi. Vestanlands dregur hins vegar bæði úr vindi og ofankomu. Á fimmtudag verður áttin svo austlæg eða breytileg, 5-13 m/s og minniháttar él norðan- og austantil, annars þurrt að kalla, en samkvæmt nýjustu spám bætir í ofankomu norðaustanlands um kvöldið,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á miðvikudag: Gengur í norðan 10-18 m/s suðaustan- og austantil, annars hægari vindur. Víða él, en bjart að mestu sunnanlands. Frost 2 til 9 stig. Á fimmtudag: Norðaustan og norðan 5-13. Dálítil él norðan- og austantil, annars þurrt að kalla. Frost 2 til 13 stig, kaldast inn til landsins. Á föstudag: Norðaustan 5-13 og él, en léttir til sunnanlands. Áfram kalt í veðri. Á laugardag: Norðaustlæg átt og él, en víða þurrt og bjart á Suðvestur- og Vesturlandi. Frost 1 til 9 stig. Á sunnudag og mánudag: Norðlæg eða breytileg átt og él á víð og dreif. Svalt í veðri.
Veður Mest lesið Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Erlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Veður Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Innlent Fleiri fréttir Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Sjá meira