Veður

Smálægðir keppast við að stýra veðrinu í dag

Jón Þór Stefánsson skrifar
Búist er við breytilegri vindátt í dag.
Búist er við breytilegri vindátt í dag. Vísir/Vilhelm

„Í dag keppast smálægðir um að stýra veðrinu hjá okkur,“ segir í textaspá Veðurstofunnar um veðrið í dag.

Þar segir jafnframt að sú lægð sem hafi haldið að suðvestanáttinni með éljum á vestari helmingi landsins muni færast suður og svo austur fyrir. Þá muni önnur lægð á Húnaflóa fram eftir degi sem muni svo eyðast.

Vegna þessa er búist við því að vindáttin verði breytileg. Það verði yfirleitt ekki hvass vindur og snjókoma með köflum. Þá muni eitthvað blása norðvestantil og allra syðst á landinu. Frost verður á bilinu tvö til átta stig.

Fram kemur að undir kvöld verði vindurinn orðinn norðlægur og að víða verði átta til fimmtán metrar á sekúndu og él. En þá muni stytta upp sunnan heiða.

Þá er búist við áframhaldandi norðlægri átt á sunnudag. Þó muni draga bæði úr vindi og ofankomu og herðir talsvert á frosti.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á sunnudag:

Norðan 8-15 m/s og dálítil él, en bjart að mestu sunnan heiða. Yfirleitt hægari eftir hádegi. Frost 4 til 16 stig, kaldast inn til landsins. Bætir í vind vestantil undir kvöld og sums staðar snjókoma.

Á mánudag:

Austlæg eða breytileg átt 5-13 og él á víð og dreif, en snjókoma sunnantil fram eftir morgni. Herðir á frosti, 5 til 20 stig síðdegis, kaldast í innsveitum fyrir norðan.

Á þriðjudag (gamlársdagur) og miðvikudag (nýársdagur):

Norðaustan og norðan 5-13 og dálítil él, en bjart að mestu á Suður- og Vesturlandi. Talsvert frost.

Á fimmtudag:

Snýst í vestlæga átt með dálitlum éljum, en þurrt á Suður- og Austurlandi. Áfram kalt í veðri.

Á föstudag:

Útlit fyrir kalda norðalæga átt með dálitlum éljum fyrir norðan og austan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×