Yfirleitt þurrt og bjart veður sunnan- og vestantil Atli Ísleifsson skrifar 8. janúar 2025 07:30 Það mun lægja seint í dag. Vísir/Vilhelm Lægð yfir Skandinavíu og hæðarhryggur á Grænlandssundi beina nú norðlægri átt til landsins, yfirleitt fimm til fimmtán metrum á sekúndu í dag. Hvassast verður austantil.
Á vef Veðurstofunnar segir að það verði él um landið norðaustanvert, en yfirleitt þurrt og bjart veður á Suður- og Vesturlandi. „Frost 3 til 17 stig, kaldast inn til landsins. Lægir seint í dag og styttir upp fyrir austan. Á morgun verður hæðarhryggurinn yfir landinu. Vindur verður því fremur hægur og víða kalt og bjart veður, en þó mun eitthvað blása norðantil á landinu. Seinnipartinn þykknar upp vestanlands með stöku éljum og þar dregur úr frosti. Á föstudag er svo útlit fyrir suðlæga átt með éljum eða slydduéljum sunnan- og vestanlands. Hlýnar smám saman,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á fimmtudag: Sunnan 8-13 m/s norðantil, annars hægari vindur. Víða bjart, en þykknar upp vestanlands með stöku éljum. Frost 0 til 15 stig, minnst vestast á landinu. Á föstudag: Suðaustlæg eða breytileg átt 5-13 og dálítil él, en þurrt á Austurlandi. Frost 1 til 10 stig, en hiti kringum frostmark við suður- og vesturströndina. Á laugardag: Sunnan 8-15 og rigning eða slydda með köflum, en úrkomulítið norðaustanlands. Hlýnandi, hiti 1 til 7 stig síðdegis. Á sunnudag: Ákveðin suðaustanátt snemma um morguninn og rigning, einkum sunnan- og vestanlands. Snýst síðan í hægari sunnan- og suðvestanátt og dregur úr vætu. Hiti 2 til 9 stig. Á mánudag: Suðlæg átt og rigning eða skúrir. Milt í veðri. Á þriðjudag: Suðvestlæg eða breytileg átt og skúrir eða slydduél, en bætir í úrkomu síðdegis.
Veður Mest lesið Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Innlent Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Veður Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Innlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Erlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Sjá meira