Enski boltinn

Sjáðu mörk Newcastle gegn Arsenal

Valur Páll Eiríksson skrifar
Alexander Isak fagnar marki sínu á Emirates-vellinum í gærkvöld.
Alexander Isak fagnar marki sínu á Emirates-vellinum í gærkvöld. Alex Pantling/Getty Images

Newcastle vann góðan 2-0 útisigur á Arsenal í fyrri undanúrslitaleik liðanna í enska deildabikarnum í gærkvöld. Alexander Isak, sem var orðaður við Skytturnar í sumar, átti þátt í báðum mörkum gestanna.

Bæði lið höfðu átt sína sénsa, þar á meðal átti Brassinn Gabriel Martinelli skot í stöng, áður en Isak kom Newcastle yfir á 37. mínútu leiksins þegar boltinn féll fyrir fætur Svíans í teignum. Hann skaut boltanum í slá og inn.

Síðara mark Newcastle skoraði Anthony Gordon, þegar hann fylgdi eftir tilraun Isaks sem David Raya, markvörður Arsenal, varði.

Klippa: Mörk Newcastle gegn Arsenal

Mörkin tvö veita Newcastle 2-0 forystu fyrir síðari leik liðanna á St. James' Park þann 5. febrúar og þeir svarthvítu standa því vel að vígi.

Mörkin úr leiknum má sjá í spilaranum.

Fyrri leikur hins undanúrslitaeinvígisins er á dagskrá í kvöld. Tottenham mætir Liverpool í Lundúnum klukkan 20:00. Leikurinn verður sýndur beint á Vodafone Sport.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×