Víða skúrir og hlýnandi veður Atli Ísleifsson skrifar 10. janúar 2025 07:08 Búast má við miklum leysingum um helgina, auknu afrennsli og vatnavöxtum í ám og lækjum. Vísir/Vilhelm Veðurstofan gerir ráð fyrir suðaustanátt, yfirleitt á bilinu átta til þrettán metrum á sekúndu, og dálitlum éljum eða skúrum. Þó má reikna með öllu hvassari vindi með rigningu eða slyddu á Snæfellsnesi og á Vestfjörðum síðdegis.
Í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofunnar segir að það verði þurrt að mestu norðaustanlands. Hlýnandi veður þar sem hiti verður víða eitt til sex stig kvöldið. „Áframhaldandi sunnanátt á morgun með rigningu en þurrt að kalla á Austurlandi. Aðfaranótt sunnudags gengur í suðaustan 13-20 m/s með rigningu og hiti fer upp í 5 til 10 stig. Búast má við miklum leysingum, auknu afrennsli og vatnavöxtum í ám og lækjum. Mikil hálka getur myndast þar sem rignir á klakabunka eða þjappaðan snjó. Mikilvægt er að hreinsa frá niðurföllum til að forðast vatnstjón vegna rigningar og leysingavatns. Fólk er hvatt til að sýna aðgát og fylgjast með veðurspám,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Sunnan 8-13 m/s, en hvassari um tíma á Snæfellsnesi. Rigning eða slydda með köflum og hiti 0 til 6 stig, en úrkomulítið og hiti um og undir frostmarki austantil. Á sunnudag: Suðaustan 13-20 m/s, hvassast suðvestantil. Rigning, einkum sunnan- og vestanlands, en snýst í hægari suðvestlæga átt og dregur úr vætu uppúr hádegi, en áfram rigning suðaustanlands fram á kvöld. Hiti 1 til 8 stig. Á mánudag: Suðvestanátt og rigning eða slydda, en þurrt að kalla austanlands fram undir kvöld. Hiti 1 til 6 stig, en frost 0 til 7 stig á norðaustanverðu landinu. Á þriðjudag: Suðlæg átt og rigning, en sums staðar slydda fyrir norðan í fyrstu. Hiti 0 til 10 stig, mildast syðst. Á miðvikudag: Útlit fyrir ákveðna suðvestlæga átt og rigningu, en þurrt að kalla á Austurlandi. Á fimmtudag: Líklega suðvestlæg átt og él, en að mestu þurrt austantil.
Veður Mest lesið Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Innlent Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Veður Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Innlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Erlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Sjá meira