Innlent

Fjölgun ferða­manna hefur á­hrif á út­köll Land­helgis­gæslunnar

Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar
Georg Lárusson forstjóri Landhelgisgæslunnar segir mikilvægt að hafa öflugt eftirlit með innviðum líkt og sæstrengjum.
Georg Lárusson forstjóri Landhelgisgæslunnar segir mikilvægt að hafa öflugt eftirlit með innviðum líkt og sæstrengjum. Vísir/Sigurjón

Stór hluti af útköllum þyrlusveitar Landhelgisgæslunnar á síðasta ári var vegna sjúkraflutninga. Forstjóri Landhelgisgæslunnar segir fjölgun erlendra ferðamanna hafa sitt að segja.

Þyrlusveitin var kölluð út þrjú hundruð þrjátíu og fjórum sinnum í fyrra. Georg Lárusson forstjóri Landhelgisgæslunnar segir fjölgun sjúkraflutninga hafa þar mest um að segja en útköll vegna þeirra voru hundrað áttatíu og þrjú.

„Við erum svona helst að láta okkur detta í hug að það sé fjölgun ferðamanna sem að skýri hluta af þessu og einfaldlega aukin krafa fólks um þjónustu, meiri læknisþjónustu og öruggari flutninga og hraðari komu á heilsugæslu eða bráðasjúkrahús.“

Georg segir kostnað Landhelgisgæslunnar vegna erlendra ferðamanna nokkurn.

„Í flestum tilfellum þá stöndum við straum af þeim kostnaði. Ef að þetta eru ferðamenn utan EES svæðisins þá er reynt að innheimta hjá þeim eða þeirra tryggingarfélögum. Það gengur svona misjafnlega. Við höfum nú lengi horft til þess að við gætum fengið eitthvað af gjöldum sem eru tekin af ferðamönnum sem koma til landsins. Það hefur nú ekki orðið enn en við teljum að það sé mál sem að þyrfti að skoða rækilega. “

Í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar er fylgst með flug- og skipaumferð í kringum landið.Vísir/Sigurjón

Landhelgisgæslan hefur yfir að ráða einni flugvél og þremur þyrlum. Flugvélin hefur verið töluvert í leigu til að afla Landhelgisgæslunni tekna og hefur henni lítið sem ekkert verið flogið í kringum Íslands síðastliðið ár. Georg vonast til að á þessu ári verði staðan önnur.

„Það sem að við teljum helst þörf á að bæta í er eftirlit með lögsögunni og þá að geta nýtt flugvélina okkar ágætu til þess að fljúga um siglingaleiðir og hafa eftirlit með innviðum sem að eru neðansjávar, sæstrengjum, það er afar brýnt og mikilvægt að bæta þar í.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×