Innlent

Berg­þór á­fram þing­flokks­for­maður

Árni Sæberg skrifar
Bergþór Ólason er þingflokksformaður Miðflokksins.
Bergþór Ólason er þingflokksformaður Miðflokksins. Vísir/Vilhelm

Bergþór Ólason hefur verið kjörinn þingflokksformaður Miðflokksins. Hann var einnig þingflokksformaður á síðasta kjörtímabili. Karl Gauti Hjaltason verður varaformaður stjórnar þingflokks og Ingibjörg Davíðsdóttir verður ritari.

Í tilkynningu segir að ný stjórn þingflokks Miðflokksins hafi verið kjörin á þingflokksfundi í gær, mánudaginn 13. janúar.

Mikill hugur hafi verið í þingflokki Miðflokksins þegar hann kom saman til fundar í gær enda styttist í upphaf þings. Verkefni Miðflokksins á þingi verði mörg og ærin til að tryggja hagsmuni landsmanna.

„Þingflokkur Miðflokksins er skipaður öflugu og reynslumiklu fólki sem er komið á þing til að berjast fyrir landsmenn, með skynsemina að vopni. Við munum verja fullveldi Íslands þegar að því verður sótt, standa gegn fjáraustri sem fyrr, berjast áfram fyrir auknu öryggi og stjórn á landamærunum ásamt því að leggja til skynsamlegar leiðir að bættari lífskjörum fólks. Þar verður ekki vanþörf á með ríkisstjórn Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins. Við hlökkum til – það munar um Miðflokkinn,“ er haft eftir Bergþóri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×