Enski boltinn

City búið að finna sinn Salah?

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Omar Marmoush er næstmarkahæsti leikmaður þýsku úrvalsdeildarinnar.
Omar Marmoush er næstmarkahæsti leikmaður þýsku úrvalsdeildarinnar. getty/Harry Langer

Fátt virðist geta komið í veg fyrir að Manchester City kaupi egypska framherjann Omar Marmoush frá Frankfurt.

Samkvæmt BBC hefur Marmoush náð munnlegu samkomulagi við Englandsmeistarana. Félagaskiptin eru þó ekki frágengin.

Marmoush hefur slegið í gegn með Frankfurt í vetur og skorað fimmtán mörk og lagt upp níu í þýsku úrvalsdeildinni. Alls hefur hann skorað tuttugu mörk í 26 leikjum í öllum keppnum á tímabilinu.

Hinn 25 ára Marmoush kom til Frankfurt frá Wolfsburg 2023. Á tíma sínum hjá Wolfsburg var hann lánaður til St. Pauli og Stuttgart.

Auk Marmoushs er City nálægt því að ganga frá kaupunum á brasilíska varnarmanninum Vitor Reis frá Palmeiras. Hann er nýorðinn nítján ára.

City er í 6. sæti ensku úrvalsdeildarinnar. Næsti leikur liðsins er gegn nýliðum Ipswich Town á sunnudaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×