Innlent

For­eldrar stefna Kennarasambandinu vegna verk­falls­að­gerða

Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar
Kennarar héldu sérstakan baráttu- og samstöðufundur í Háskólabíói í nóvember og var húsfyllir.
Kennarar héldu sérstakan baráttu- og samstöðufundur í Háskólabíói í nóvember og var húsfyllir. Vísir/Anton

Hópur foreldrar leikskólabarna hefur stefnt Kennarasambandi Íslands vegna verkfallsaðgerða kennara. Foreldrarnir telja aðgerðirnar ólöglegar.

Mál foreldranna var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur á miðvikudaginn í síðustu viku og fer aðalmeðferð fram í næstu viku.

Verkfallsaðgerðir kennara hófust í október á síðasta ári þegar kennarar í níu skólum lögðu niður störf. Þar á meðal í fjórum leikskólum það leikskólunum Holti í Reykjanesbæ, Drafnarsteini í Reykjavík, Ársölum á Sauðárkróki og Leikskóla Seltjarnarnes. Verkföllin á leikskólunum voru ótímabundin ólíkt hinum skólunum.

Verkfallsaðgerðunum var frestað í lok nóvember eftir að tillaga frá ríkissáttasemjara var samþykkt en verkföllin hefjast á ný ef ekki verður samið fyrir 1. febrúar.

Kjaradeila kennara og ríkis og sveitarfélaga virðist vera í algjörum hnút og langt í að samningar náist. Ríkissáttasemjari hefur ekki boðað til nýs fundar í deilunni og óvíst hvenær það verður gert. 

Foreldrar barna á leikskólunum fjórum sjá því fram á að verkföll hefjist á ný. Þeir hafa bent á að það sé óréttlátt að verkfallsaðgerðirnar bitni aðeins á litlum hópi barna.

Þá hefur umboðsmaður barna sagt verkfallið mismuna börnum hvað varðar rétt þeirra til menntunar.

Foreldrar barna á leikskólunum fjórum hafa því stofnað sérstakt félag sem hefur stefnt Kennarasambandinu til fá úr því skorið hvort aðgerðirnar séu í raun löglegar. Aðalmeðferð í málinu verður um miðja næstu viku.

Málið er rekið sem flýtimeðferðarmál sem gerir ráð fyrir að málið gangi hraðar en almennt gerist með mál fyrir dómstólum.

Ekki náðist í Magnús Þór Jónsson formann Kennarasambandsins vegna málsins fyrir fréttir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×