Lífið

Ás­laug Arna og KFC á þorra­blóti Aftur­eldingar

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Diskóþemað tekið alla leið!
Diskóþemað tekið alla leið! Mosfellingur

Mikil gleði var á þorrablóti Aftureldingar sem var haldið í íþróttahúsinu að Varmá síðastliðið laugardagskvöld. Um eitt þúsund Mosfellingar komu saman og blótuðu þorrann, en um er að ræða þeirra fjölmennasta þorrablót hingað til.

Skemmtikraftarnir og vinirnir Steindi Jr. og Auðunn Blöndal voru veislustjórar kvöldsins og héldu uppi stemningunni eins og þeim einum er lagið. Á boðstólum var dýrindis þorramatur frá Kjötbúðinni.

Skemmtiatriðin voru ekki af verri endanum þar sem hljómsveitin Stuðlabandið og Diljá Pétursdóttir léku fyrir dansi langt fram á kvöld.

Þá var mikill metnaður lagður í hina árlegu borðskreytingakeppni þorrablótsins, en hvert borð var listilega skreytt í mismunandi þema sem setti skemmtilegan svip á viðburðinn. 

Ljósmyndari Mosfellings, Raggi Óla, myndaði gesti kvöldsins sem virðast hafa skemmt sér konunglega.

Bryndís Haralds og Áslaug ArnaMosfellingur
Baldvin, Oliver og Eva.Mosfellingur
Inga Rut og Erla Dögg.Mosfellingur
Hilmar, Ásgeir, Svanþór og Magnús.Mosfellingur
Oddný Þóra og Ragnheiður GunnarsdóttirMosfellingur
Axel Óskar og Camilla Hrund.Mosfellingur
Raggi Óla og Anna ÓlöfMosfellingur
Blær Hinrikssin og Brynjar Vignir Sigurjónsson.Mosfellingur
Jana, Einar Ingi og Ásgeir Sveins.Mosfellingur
Kristín, Anna Lilja, Karen, Linda Ben, Svanhildur og Inga.Mosfellingur
Jón Smári og Ása Dagný.Mosfellingur
Kolbrún, Hildur og Svana.Mosfellingur
Árni Bragi og Sigdís Lind.Mosfellingur
Pétur Þorvaldsson og Ruth ÖrnólfsdóttirMosfellingur
Glimmer-fín.Mosfellingur
Glimmer skvísur!Mosfellingur
Sigurberg og Elín Anna.Mosfellingur
Anna Kristín og Erla EiríksMosfellingur
Anna Kristín og Elli Einarsdóttir.Mosfellingur





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.