Körfubolti

Valur ofar eftir æsispennu

Sindri Sverrisson skrifar
Jiselle Thomas skoraði 17 stig fyrir Val í kvöld.
Jiselle Thomas skoraði 17 stig fyrir Val í kvöld. vísir/Anton

Valskonur höfðu betur gegn Stjörnunni í æsispennandi leik í Bónus-deild kvenna í körfubolta, 85-84, og eru því með tveimur stigum meira í 6. sæti deildarinnar þegar tvær umferðir eru eftir.

Liðin voru jöfn að stigum fyrir leik kvöldsins en Stjarnan á nú á hættu að fá Hamar/Þór upp að hlið sér nái þær sunnlensku að vinna Njarðvík annað kvöld.

Valur var 45-41 yfir í hálfleik í Garðabæ í kvöld en náði mest tíu stiga forskoti í þriðja leikhlutanum. Á síðustu mínútum leiksins skiptust liðin hins vegar á að hafa forystuna og Katarzyna Trzeciak kom Stjörnunni í 84-83 með þriggja stiga körfu þegar mínúta og 15 sekúndur voru eftir.

Það reyndist hins vegar síðasta karfa Stjörnunnar. Ásta Júlía Grímsdóttir kom Val yfir þegar enn voru 53 sekúndur eftir en fleiri stig voru ekki skoruð og Valskonur fögnuðu því sætum sigri.

Hin kanadíska Alyssa Cerino var atkvæðamest hjá Val með 21 stig og 12 fráköst, en Jiselle Thomas skoraði 17 stig og Anna Maria Kolyandrova 15.

Hjá Stjörnunni var Denia Davis- Stewart með 23 stig og 10 fráköst, og Trzeciak skoraði 17 stig og tók 11 fráköst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×