Fógetinn farinn frá Hlíðarenda Sindri Sverrisson skrifar 4. febrúar 2025 10:00 Sherif Ali Kenney hefur spilað sinn síðasta leik fyrir Val. vísir/Hulda Margrét Valsmenn hafa ákveðið að segja skilið við bandaríska leikmanninn Sherif Ali Kenney sem leikið hefur með liðinu í vetur.
Samkvæmt upplýsingum Vísis kveður Kenney Ísland í dag en hann hefur ekki þótt standa undir væntingum í Bónus-deildinni í körfubolta. „Fógetinn“ skoraði 10,9 stig að meðaltali í leikjunum sextán sem hann spilaði í deildinni, tók 4,3 fráköst og gaf 2,2 stoðsendingar. Valsmenn hafa smám saman verið að endurheimta Joshua Jefferson, sem sleit krossband í hné í febrúar í fyrra, og veltu menn vöngum yfir því hvernig Valur ætlaði að takast á við það að vera með tvo bandaríska leikmenn. Jefferson meiddist skömmu eftir að félagaskiptaglugginn lokaðist á síðustu leiktíð, og Valur gat því ekki fengið mann í hans stað, en hvert lið má hafa einn bandarískan leikmann innan vallar hverju sinni samkvæmt reglum KKÍ. Valur varð engu að síður Íslandsmeistari í fyrra og þar með fyrsta liðið í 34 ár til að vinna titilinn án Bandaríkjamanns. Jefferson og Sherif spiluðu tvo deildarleiki og einn bikarleik saman, og gátu þá skiljanlega ekki verið innan vallar á sama tíma. Liðið vann alla þrjá leikina og í síðasta leik, gegn Njarðvík, skoraði Jefferson 18 stig á þeim aðeins 15 mínútum sem hann spilaði, auk þess að taka þrjú fráköst og gefa tvær stoðsendingar. Eftir þrjá sigra í röð í deildinni, eða frá því að Kristófer Acox sneri aftur eftir meiðsli, eru Valsmenn í 7. sæti með 16 stig líkt og Þór Þ., Grindavík og KR sem eru í næstu sætum fyrir ofan, nú þegar sex umferðir eru eftir fram að úrslitakeppni.
Bónus-deild karla Valur Mest lesið Ótrúlega ósáttur við Val: „Hafa skilið mann eftir einan í myrkrinu“ Handbolti Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Fótbolti Dönsk landsliðsstjarna dæmd Fótbolti Hundrað metra met Bolt „fallið“ Sport Golfáhrifavaldar í klandri vegna umdeildrar auglýsingar Golf Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Enski boltinn Heiðursmannasamkomulag var svikið: „Kom okkur á óvart“ Handbolti Raheem Sterling ákærður Enski boltinn Orri Steinn kom inn á en Mbappé skoraði þrennu Fótbolti Uppgjörið: Apollon - FH 0-2 | Flottur sigur í sögulegum leik hjá Fimleikafélaginu Fótbolti Fleiri fréttir „Gripur sem safnarar bíða alla ævi eftir“ Reese rífur í sig metin Haukar fá risavaxinn liðsauka Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Tindastóll tekur slaginn aftur í Evrópukeppni Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Keyrðu yfir Svartfellinga undir lokin og undanúrslitin bíða Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Sturla Böðvarsson til KR Sjá meira