Innherji

Kjálka­nes selt yfir helminginn af stöðu sinni í Festi á skömmum tíma

Hörður Ægisson skrifar
Festi er eitt stærsta smásölufélag landsins, rekur meðal annars verslanir og eldsneytisstöðvar undir merkjum Krónunnar, Elko og N1, og velti samtals um 155 milljörðum króna í fyrra.
Festi er eitt stærsta smásölufélag landsins, rekur meðal annars verslanir og eldsneytisstöðvar undir merkjum Krónunnar, Elko og N1, og velti samtals um 155 milljörðum króna í fyrra. vísir/egill

Fjárfestingafélagið Kjálkanes, sem er meðal annars í eigu fyrrverandi stjórnarmanns í Festi, hefur á liðlega tveimur mánuðum losað um ríflega helminginn af hlutabréfastöðu sinni í smásölurisanum samtímis þeim mikla meðbyr sem hefur verið með hlutabréfaverði fyrirtækisins. Samanlagður eignarhlutur einkafjárfesta í Festi, sem skilaði afar öflugu uppgjöri fyrr í þessum mánuði, er sem fyrr hverfandi á meðan lífeyrissjóðir eru alltumlykjandi í hluthafahópnum.


Tengdar fréttir

Auka enn stöðu sína í Festi þegar stærstu einka­fjár­festarnir voru keyptir út

Lífeyrissjóðir keyptu umtalsverðan hluta bréfa af tveimur stærstu einkafjárfestunum í Festi þegar þeir losuðu um allan sinn eignarhlut sinn í smásölurisanum fyrir samtals tæplega þrjá milljarða fyrr í þessum mánuði. Umsvif einkafjárfesta í félaginu er núna hverfandi en samanlagður eignarhlutur lífeyrissjóða í Festi er á sama tíma óðum að nálgast hátt í áttatíu prósent.

„Aldrei orðið vitni að öðrum eins vinnu­brögðum og beinni í­hlutun líf­eyris­sjóða“

Frambjóðandi til stjórnar úr röðum stærstu einkafjárfesta Festar fór hörðum orðum um starfshætti tveggja stórra lífeyrissjóða, sem höfðu lýst yfir óánægju sinni með tilnefningu hans til stjórnar, í ræðu á aðalfundi og sagðist aldrei hafa upplifað önnur eins vinnubrögð og beina íhlutun af hálfu stofnanafjárfesta. Sakaði Þórður Már Jóhannesson, sem dró framboð sitt til baka á fundinum, sjóðina meðal annars um nýta sér glufu í lögum um kynjakvóta sem tæki í „valdabaráttu“ sinni við stjórnarkjörið.

Verð­mat Fest­ar hækk­að­i um átta millj­arð­a vegn­a Lyfj­u

Verðmat Festar hækkaði um tólf prósent, einkum vegna hærri rekstraráætlunar í kjölfar þess að Lyfja varð hluti af samstæðunni. Tilkoma Lyfju í samstæðu Festar hefur „vitanlega nokkur áhrif á rekstraráætlun“ samstæðunnar, bendir greinandi á. Tekjur og framlegð Festar var umfram væntingar á öðrum ársfjórðungi, að hans sögn.

Heiðar byggir upp stöðu í smá­sölurisanum Festi

Fjárfestirinn Heiðar Guðjónsson, fyrrverandi forstjóri og aðaleigandi Sýnar um árabil, er kominn í hóp umsvifamestu einkafjárfestanna í Festi í kjölfar þess að þeir Þórður Már Jóhannesson og Hreggviður Jónsson seldu sig út úr félaginu fyrr í sumar. Heiðar hefur byggt upp stöðu í félaginu, sem rekur meðal annars eldsneytisstöðvar undir merkjum N1 og verslanir Krónunnar og Elko, í gegnum framvirka samninga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×